Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2018 Utanríkisráðuneytið

Skrifað undir rammasamning við UN Women

Guðlaugur Þór og Phumzile Mlambo-Ngcuka við undirritun samningsins í New York. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) undirrituðu í morgun rammasamning um áframhaldandi samstarf íslenskra stjórnvalda og UN Women. Guðlaugur Þór er staddur í New York þar sem hann mun funda með Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og forsvarsmönnum helstu samvinnustofnana Íslands á vettvangi SÞ.

Í þróunarsamvinnu íslenskra stjórnvalda hefur verið lögð áhersla á samstarf við UN Women og þrjár aðrar fjölþjóðlegar stofnanir. UN Women vinnur ötullega að því að auka virðingu fyrir mannréttindum kvenna um allan heim og auka vægi jafnréttismála hvort sem er í einstökum ríkjum eða í störfum Sameinuðu þjóðanna enda lýtur fimmta Heimsmarkmiðið sérstaklega að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna.

Árangurinn af störfum UN Women felst m.a. í lagabreytingum í einstaka ríkjum sem fela í sér aukið jafnrétti og taka á kynbundnu ofbeldi, aukinni stjórnmálaþátttöku kvenna og efnahagslega valdefingu kvenna – allt aðgerðir sem geta haft djúpstæð áhrif á réttarstöðu milljóna kvenna um allan heim.

„Framlög Íslands til UN Women skipta verulegu máli og eru í takt við forystu Íslands í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi,“ sagði Guðlaugur Þór. „Bætt staða kvenna er ekki eingöngu mannréttindamál, heldur grundvöllurinn fyrir sjálfbærri þróun og árangri á öðrum sviðum. Við getum ekki tekist á við áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir með hálft lið á vellinum,“ sagði hann.

Íslensk stjórnvöld hafa stutt starfsemi UN Women, þar með talið landsnefnd UN Women á Íslandi, með fjárframlögum um árabil, að mestu leyti í formi kjarnaframlaga en einnig framlaga sem renna m.a. til verkefna í Mósambík, Afganistan, Palestínu og flóttamannabúðum í Jórdaníu. Ennfremur hafa allmargir íslenskir starfsmenn verið sendir utan til starfa á vegum UN Women. Samkvæmt samningnum munu íslensk stjórnvöld verja að minnsta kosti 170 milljónum króna árlega í framlög til stofnunarinnar til viðbótar við sérstakan stuðning við verkefni UN Women í Mósambík um konur, frið og öryggi, sem hófst á síðasta ári.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum