Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 44/2019 Úrskurður 22. maí 2019

Mál nr. 44/2019                    Millinafn:       Zar

 

 

 

Hinn 22. maí 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 44/2019 en erindið barst nefndinni 14. maí. 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Zar er ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir þannig ekki skilyrði 2. mgr. 6. gr. laganna, sbr. úrskurði mannanafnanefndar frá 27. febrúar 2009 í máli nr. 22/2009 og 1. apríl 2016 í máli nr. 19/2016.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Zar er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum