Þann 11. mars sl. undirrituðu forsvarsmenn Vísindagarðs HÍ og nýsköpunar- og tæknigarðsins Sophia Antipolis samning í Cannes um samstarf á sviði nýsköpunar. Þar starfa 43 þúsund vísindamenn, háskólafólk, frumkvöðlar og starfsmenn stórfyrirtækja af 80 þjóðernum á sviði nýjustu tækni og vísinda. Sophia Antipolis hefur gert svipaða samninga við margar stofnanir, nýlega við MIT í Bandaríkjunum og Here East í Bretlandi.
“Samningurinn veitir mikla möguleika á samstarfi íslenskra vísindamanna og frumkvöðla við þennan stærsta og elsta tæknigarð í Evrópu. Ég vil þakka Fransk-íslenska viðskiptaráðinu (FRÍS) fyrir að koma þessu verkefni á laggirnar og hvet áhugasama um nýsköpun að kynna sér frekar þá spennandi samstarfsmöguleika sem samningurinn býður upp á” segir Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í París.