Hoppa yfir valmynd
28. mars 2019 Innviðaráðuneytið

Wow air hætt starfsemi - tilkynning frá Samgöngustofu

Samgöngustofa hefur gefið út tilkynningu á vef sínum með leiðbeiningum til farþega Wow air eftir að tilkynnt var í morgun að félagið hafi hætt starfsemi og öll flug verði felld niður.

Tilkynning Samgöngustofu

Hvernig kemst ég á áfangastað?
Farþegum er bent á að kanna möguleika á flugi hjá öðrum flugfélögum. Athugið að sum flugfélög kunna við þessar aðstæður að bjóða farþegum aðstoð í formi björgunarfargjalda. Upplýsingar um þau félög verða birtar um leið og þær liggja fyrir.

Hver eru réttindi mín?
Farþegum sem keyptu flugmiða með kreditkorti er bent á að hafa samband við útgefanda kortsins til að kanna möguleika á að fá flugmiðann endurgreiddan.

Farþegar sem keyptu ferðina af evrópskum ferðaskipuleggjanda sem seldi flugmiðann sem hluta af svokallaðri alferð (þ.e. samsettri ferð þar sem flug er selt ásamt gistingu eða öðrum þjónustuþáttum) eiga rétt á heimflutningi á grundvelli samevrópskra reglna um alferðir. Farþegum er bent á að hafa samband við þann ferðaskipuleggjanda sem þeir keyptu ferð sína af.

Farþegar kunna jafnframt að eiga kröfu á hendur WOW AIR, m.a. á grundvelli reglugerðar um réttindi flugfarþega. Þegar um gjaldþrot er að ræða þarf að lýsa slíkum kröfum í þrotabú flugrekandans.

Hvar fæ ég nýjustu upplýsingar?
Tilkynningin verður birt og uppfærð með nýjustu upplýsingum hverju sinni á vef Samgöngustofu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum