Hoppa yfir valmynd
12. maí 2020 Utanríkisráðuneytið

Níundi hver jarðarbúi býr við sult

Ljósmynd úr skýrslunni. - mynd

Vannæring og ofnæring eru helstu ástæður vanheilsu og dauðsfalla í heiminum, segir í árlegri skýrslu um næringarmál sem gefin var út í dag. Einn af hverjum níu íbúum jarðarinnar býr við sult, eða 820 milljónir manna, og þriðji hver jarðarbúi er of þungur eða of feitur.

Stokka þarf upp fæðu- og heilbrigðiskerfi í heiminum til að mæta vandanum, segja skýrsluhöfundar The Global Nutrion Report 2020. Skýrslan leiðir í ljós að flestir hafa ýmist ekki aðgang að, eða ekki efni á, heilsusamlegu fæði vegna landbúnaðarkerfa sem setja kaloríur ofar næringu, og bjóða neytendum lágt verð á unnum kjötvörum. Sífellt fleiri þjóðir bætast í hóp þeirra sem glíma við tvöfalda byrði, offitu og aðra fæðutengda sjúkdóma, eins og sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein.

Skýrslan er unnin áður en kórónaveirufaraldurinn kom til sögunnar en David Nabarro, sérlegur fulltrúi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á sviði næringarmála, segir í formála að mikil hætta sé á því að árangur í baráttunni gegn hungri og vannæringu glatist nú þegar þjóðir einbeita sér að því að forðast útbreiðslu faraldursins. Hann bendir líka á að vannærðir séu í meiri hættu að fá COVID-19 vegna þess að ónæmiskerfi þeirra sé veikt.

Í síðasta mánuði vöruðu Sameinuðu þjóðirnar við því að heimsfaraldurinn gæti leitt til þess að tvöfalt fleiri yrðu hungraðir í heiminum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum