Hoppa yfir valmynd
13. desember 2005 Heilbrigðisráðuneytið

Ný heilsugæslustöð rís á Skagaströnd

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. Húsið verður 267 m² timburhús, byggt á steyptri grunnplötu með sökkulbitum. Byggingin hýsir skrifstofu læknis og hjúkrunarfræðings ásamt tilheyrandi aðgerða- og rannsóknarstofu, en þar er einnig gert ráð fyrir sjúkraþjálfun, auk móttöku og biðstofu. Samkvæmt verksamningi á húsið að rísa fyrir 1. ágúst á næsta ári, en hönnun þess lauk í september sl.

Í ársbyrjun 2005 var ákveðið að stefna að því að reisa á Skagaströnd  svipað hús og byggt hefur verið fyrir heilsugæslustöðina á Reyðarfirði. Frumhönnun þess, stærð og staðsetning var ákveðin á fyrri hluta ársins í samráði við heimamenn og stjórnendur stöðvarinnar. Bjóða þurfti verkið út tvívegis þar sem ekki fékkst viðunandi tilboð í fyrra útboðinu. Tilboð í seinna útboðinu voru opnuð 1. nóvember sl. og bárust þá fjögur tilboð í verkið sem voru 11 til 24 % yfir kostnaðaráætlun hönnuða. Ákveðið var að taka tilboði lægstbjóðanda, Trésmiðju Helga Gunnarssonar ehf á Skagaströnd. Heilsugæslustöðin á Skagaströnd er nú í tveggja hæða húsi, sem tekið var í notkun 1967. Var upphaflega íbúð læknis á efri hæð og móttaka sjúklinga á neðri hæð. Nokkur undanfarin ár hefur heilsugæslustöð verið rekin á efri hæð hússins en á neðri hæðinni er  apótek og aðstaða fyrir tannlækni. Nokkuð þótti vanta á að húsnæðið stæðist kröfur sem nú eru gerðar til heilsugæslustöðva meðal annars uppfyllti húsið ekki kröfur sem gerðar eru um aðgengi hreyfihamlaðra og því var ákveðið að reisa nýtt hús. Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi sér um rekstur heilsugæslunnar á Skagaströnd. Eftir að verksamningar hafa verið undirritaðir og ráðherra tekið fyrstu skóflustunguna verður boðið upp á kaffiveitingar í Viðvík á Skagaströnd.

 

 Ráðherra tekur fyrstu skóflustunguna á Skagaströnd

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tekur fyrstu skóflustungu nýrrar heilsugæslustöðvar á Skagaströnd.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum