Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 441/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 441/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16090030

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 13. september 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. september 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Belgíu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 7. ágúst 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu og Hollandi. Þann 9. ágúst 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 19. ágúst 2016 barst svar frá belgískum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 7. september 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu þann 13. september 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 14. september 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. september 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Belgíu. Lagt var til grundvallar að Belgía virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement).

Því fæli flutningur kæranda til Belgíu ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Belgíu, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali við Útlendingastofnun að hann vilji ekki fara aftur til Belgíu þar sem hann hafi búið í um tvö ár. Þar leiti margir hælis og aðstæður hans hafi ekki verið góðar. Í Belgíu hafi hann fengið vasapeninga, fæði og notið lögfræðiaðstoðar ásamt því að hafa fengið húsaskjól í flóttamannabúðum þar sem hann hafi deilt herbergi með fjórum öðrum. Hann hafi á hinn bóginn ekki átt rétt til að vinna. Á Íslandi líði honum vel og eigi hér kærustu.

Í greinargerð kæranda er aðstæðum fyrir hælisleitendur í Belgíu lýst og vitnað til alþjóðlegra skýrslna í því sambandi. Í þeim komi fram að þeir hælisleitendur, sem fengið hafi synjun á umsókn sinni um vernd í Belgíu og sæki aftur um hæli þar í landi, eigi ekki rétt á húsnæði eða annarri félagslegri aðstoð sem hælisleitendum er annars veitt í landinu. Verði kærandi sendur til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þurfi hann því að búa á götunni þar til hann verði sendur úr landi. Þá sé óljóst hvort belgísk útlendingayfirvöld geti sinnt öllum hælisleitendum, m.t.t. viðeigandi móttökuaðstæðna og -skilyrða, vegna þeirrar aukningar á hælisumsóknum sem hafi orðið þar í landi síðari hluta ársins 2015. Auk þess sé erfitt fyrir hælisleitendur að finna sér atvinnu þrátt fyrir að aðgangur að vinnumarkaðnum í Belgíu sé tryggður í lögum, m.a. vegna tungumálaörðugleika, mikillar mismununar í garð hælisleitenda á vinnumarkaðnum og þeirrar staðreyndar að erlend prófskírteini séu ekki metin til jafns við innlend.

Í greinargerð kæranda er vísað til Dyflinnarreglugerðarinnar, d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringargagna að baki þeim. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Þá er á það bent að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem beri ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni. Það fái stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 um endursendingar til Ítalíu. Þar komi meðal annars fram að nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu hafi skýrt að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð eða móttöku hælisleitenda í viðtökulandinu heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmálans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að belgísk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Belgíu.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar

2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstarfsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfsætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Belgíu.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Belgíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

* Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015)

* 2015 Country Reports on Human Rights Practices – Belgium (United States Department of State, 13. apríl 2016)

* Freedom in the World 2016 – Belgium (Freedom House, 20. júní 2016)

* Amnesty International Report 2015/16 – Belgium (Amnesty International, 24. febrúar 2016)

* The organisation of Reception Facilities in Belgium (European Migration Network, ágúst 2013)

Samkvæmt gögnum málsins geta einstaklingar sótt um hæli á flugvellinum við komu til Belgíu eða hjá útlendingastofnun (e. Aliens Office) þar í landi. Stofnun sem fer með hælisumsóknir (e. The Commissioner General for Refugees and Stateless Persons (CGRS)) tekur ákvarðanir í hælismálum á fyrsta stjórnsýslustigi. Ákvarðanir hennar eru kæranlegar til stjórnsýsludómstóls í útlendingamálum (CALL). Fái umsækjandi um hæli endanlega synjun á umsókn sinni eiga hælisleitendur möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (e. subsequent application) hjá útlendingastofnun. Liggi nýjar upplýsingar fyrir í málinu, sem auka möguleika viðkomandi hælisleitanda á því að fá alþjóðlega vernd, sendir útlendingastofnun málið til CGRS sem svo metur innan átta virkra daga hvort umsóknin verði

tekin til efnismeðferðar. Sé samþykkt að taka viðbótarumsókn til efnismeðferðar nýtur umsækjandi þeirrar þjónustu sem stendur hælisleitendum til boða. Þá geta hælisleitendur borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga hælisleitendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, teljir þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans. Að sama skapi er Belgía aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að belgísk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi móttöku og þjónustu við hælisleitendur skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 33/2013 um viðmið varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Belgíu hefur ekki leitt í ljós að tilefni sé til að ætla að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Belgíu brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Belgíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 2. september 2016 vera í góðu andlegu og líkamlegu ástandi auk þess að eiga í sambandi við íslenskan ríkisborgara og hann hefði því sérstök tengsl við Ísland, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aftur á móti hafa við meðferð málsins hjá kærunefnd ekki komið fram frekari upplýsingar hvað þetta varðar. Kærunefndin vísar í þessu sambandi til dóms Hæstaréttar í máli nr. 405/2013 en þar var talið að skilyrði undantekningarheimildar 2. mgr. 46. gr. a útlendingalaga væru ekki uppfyllt þrátt fyrir að viðkomandi hælisleitandi hefði átt í sambandi við íslenskan ríkisborgara. Í því ljósi telur kærunefnd ljóst að aðstæður kæranda falli ekki undir sérstök tengsl í skilningi 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi önnur slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um hæli hér á landi og senda hann til Belgíu með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og

óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum