Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 112/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 112/2016

Miðvikudaginn 30.nóvember 2016

A

v/B

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Jón Baldursson læknir.

Með kæru, dags. 17. mars 2016, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála umönnunarmat Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. nóvember 2015 þar sem umönnun sonar kæranda, B, var felld undir 4. flokk, 25% greiðslur.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með umönnunarmati, dags. 29. janúar 2009, var umönnun sonar kæranda felld undir 5. flokk, 0% greiðslur, frá 1. janúar 2009 til 31. júlí 2014. Með umönnunarmati, dags. 6. desember 2013, var umönnun sonar kæranda felld undir 4. flokk, 25% greiðslur, frá 1. nóvember 2013 til 31. júlí 2015. Síðarnefnda umönnunarmatið kom til endurskoðunar af hálfu Tryggingastofnunar ríkisins vegna beiðni kæranda þar um og með umönnunarmati, dags. 18. mars 2014, var umönnun felld undir 4. flokk, 25% greiðslur, á nýjan leik en með gildistíma frá 1. september 2013 til 31. júlí 2015. Þá var umönnun felld undir 4. flokk, 25% greiðslur, með umönnunarmati, dags. 13. nóvember 2015, frá 1. ágúst 2015 til 31. júlí 2018. Kærandi óskaði rökstuðnings frá Tryggingastofnun ríkisins með tölvubréfi 18. nóvember 2015 vegna þeirrar ákvörðunar og var hann veittur með bréfi stofnunarinnar, dags. 3. febrúar 2016.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. mars 2016. Með tölvubréfi 30. mars 2016 óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 19. apríl 2016, barst umbeðin greinargerð og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Viðbótargögn bárust frá kæranda og voru þau kynnt Tryggingastofnun ríkisins með tölvubréfi úrskurðarnefndar 26. apríl 2016. Með bréfi, dags. 4. maí 2016, barst viðbótargreinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að umönnunarmat vegna sonar hennar, B, verði ákvarðað samkvæmt 3. flokki í fyrri töflu 5. gr. reglugerðar nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

Í kæru segir að kærandi óski eftir því að gert verði nýtt umönnunarmat vegna sonar hennar sem hafi verið greindur á einhverfurófi (ADOS einhverfupróf) af barnageðlækni. Núverandi mat og greiðslur miðist við 4. flokk og samkvæmt Tryggingastofnun ríkisins sé það vegna þess að niðurstaða greiningar hafi ekki verið staðfest hjá Barna- og unglingageðdeild Landpítalans (BUGL). Á meðan það sé staðan eigi sonur kæranda ekki rétt á þjónustu sveitarfélagsins þar sem ekki fáist greiðslur úr jöfnunarsjóði. Kærandi hafi aldrei haft vitneskju um að staðfesting greiningar væri forsenda þess að sonur hennar fengi þá þjónustu sem hann eigi rétt á. Kærandi óski eftir að umönnunarmatið miðist við 3. flokk sem sé sá flokkur sem sveitarfélagið miði við.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kveðið sé á um heimild til fjárhagslegrar aðstoðar við framfærendur fatlaðra og langveikra barna í 4. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Nánar sé fjallað um heimildir og skilyrði greiðslna í reglugerð nr. 504/1997 með seinni breytingum.

Í nefndu lagaákvæði og 1. gr. reglugerðar nr. 504/1997 sé það skilyrði fyrir fjárhagslegri aðstoð frá Tryggingastofnun ríkisins að barn sé haldið sjúkdómi eða andlegri eða líkamlegri hömlun sem hafi í för með sér sannanlega tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 504/1997 séu skilgreiningar á fötlunar- og sjúkdómsstigum. Þar sé tilgreint að fara skuli fram flokkun á erfiðleikum barna út frá umönnun, gæslu og útgjöldum, annars vegar vegna barna með fötlun og þroska- og atferlisraskanir, tafla I, og hins vegar vegna barna með langvinn veikindi, tafla II.

Í greininni komi fram að aðstoð vegna barna með alvarlegar þroskaraskanir og/eða atferlisraskanir, sem jafna megi við fötlun eða geðræna sjúkdóma og krefjist þjálfunar og eftirlits sérfræðinga og aðstoðar í skóla og á heimili og meðal jafnaldra, miðist við 4. flokk í töflu I. Greiðslur vegna 4. flokks séu að hámarki 25% af lífeyri og tengdum bótum.

Í 3. flokk í töflu I falli aftur á móti börn sem vegna fötlunar þurfi aðstoð og gæslu í daglegu lífi, til dæmis vegna vægrar þroskahömlunar, hreyfihömlunar sem krefjist notkunar spelka og/eða hækja við ferli, heyrnarskerðingar sem krefjist notkunar heyrnartækja í bæði eyru og verulegrar sjónskerðingar á báðum augum. Í 2. flokk falli síðan börn sem vegna alvarlegrar eða miðlungs þroskahömlunar, hreyfihömlunar sem krefjist notkunar hjólastóls, verulegrar tengslaskerðingar, einhverfu, heyrnarskerðingar sem krefjist notkunar táknmáls/varalesturs og blindu.

Gerð hafi verið fjögur umönnunarmöt vegna sonar kæranda. Fyrsta mat, dags. 29. janúar 2009, hafi verið samkvæmt 5. flokki, 0% greiðslur, fyrir tímabilið 1. janúar 2009 til 31. júlí 2014. Næsta umönnunarmat, dags. 6. desember 2013, hafi verið samkvæmt 4. flokki, 25% greiðslur, fyrir tímabilið frá 1. nóvember 2013 til 31. júlí 2015. Kærandi óskaði endurmats og var síðastnefnda matinu breytt með nýju mati, dags. 18. mars 2014. Það mat gilti afturvirkt frá 1. september 2013 til 31. júlí 2015 og var samkvæmt 4. flokki, 25% greiðslur. Að lokum hafi verið gert umönnunarmat, dags. 13. nóvember 2015, sem hafi hljóðað upp á mat samkvæmt 4. flokki, 25% greiðslur, fyrir tímabilið frá 1. ágúst 2015 til 31. júlí 2018. Það mat hafi nú verið kært.

Þegar umönnunarmat sé gert sé byggt á 4. gr. laga um félagslega aðstoð með síðari breytingum. Þar segi að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna og taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hafi í för með sér tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu.

Nánar séu tilgreindar heimildir til aðstoðar í reglugerð nr. 504/1997, með síðari breytingum. Í 5. gr. reglugerðarinnar sé ákveðin flokkun vegna umönnunar, gæslu og útgjalda vegna barna með fötlun, veikindi og þroskaraskanir. Þessi flokkun í reglugerðinni, ásamt fyrirliggjandi gögnum, séu notuð þegar umönnunarmat sé ákvarðað af stofnuninni.

Í vottorði C læknis, dags. 4. september 2015, komi fram að sonur kæranda sé greindur með einhverfu (F84.0). Enn fremur segi að fyrir hendi sé félagsleg einangrun og einhverfueinkenni auk hamlandi kvíðaeinkenna. Sótt hafi verið um lokagreiningu á vegum taugateymis Barna- og unglingageðdeildar Landspítala. Í fyrra vottorði læknisins, dags. 22. október 2013, komi fram að sonur kæranda sé greindur með Aspergerheilkenni (F84.5) eða einhverfurófsröskun.

Taugateymi Barna- og unglingageðdeildar sjái meðal annars um framkvæmd einhverfugreininga stofnunarinnar. Tryggingastofnun ríkisins hafi ekki fengið gögn sem staðfesti að sú greining hafi farið fram og samkvæmt símtali við læknaritara á BUGL hafi sonur kæranda verið á biðlista og var að bíða eftir þjónustu þegar síðasta umönnunarmat fór fram.

Tryggingastofnun ríkisins líti þannig á að einungis sé heimilt að gera mat samkvæmt þriðja flokki eða hærri flokki þegar fyrir liggi að fram hafi farið ítarlegar athuganir með viðurkenndum prófum hjá til þess bærum aðilum og til staðar sé alvarleg fötlun.

Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins hafi það hlutverk að greina alvarlegar þroskaraskanir barna, sem vísað sé til athugunar eftir að frumgreining hafi farið fram, sbr. lög nr. 83/2003 um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, með síðari breytingum. Í 2. gr. þeirra laga komi fram að með greiningu sé átt við athugun og samráð sérfræðinga með alþjóðlega viðurkenndum aðferðum til mats á eðli röskunar, til flokkunar eftir alþjóðlegum greiningarviðmiðum og til staðfestingar á fötlun, þegar það eigi við. Frumgreining teljist vera formleg athugun á þroska og færni eftir að grunur um frávik í þroska hafi vaknað.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins meti meðal annars alvarleika einhverfueinkenna. Vegna mikils álags hjá þeirri stofnun hafi hún handleitt teymi hjá Barna- og unglingageðdeild og Þroska- og hegðunarstöð til að geta sinnt greiningum á alvarleika einhverfueinkenna. Þar fari fram ítarlegar athuganir og nákvæm mismunagreining með viðurkenndum prófum í teymisvinnu fagaðila. Tryggingastofnun ríkisins meti það svo að fötlunargreining sé ekki staðfest fyrr en niðurstöður liggi fyrir frá þessum stofnunum, enda sé þá öruggt að vinnubrögð séu samkvæmt stöðlum Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Greining einhverfu sé flókið ferli. Litið sé svo á að hægt sé að útskýra alvarleika einhverfueinkenna best með því að þetta sé róf þar sem einstaklingar geti haft missterk einkenni á einhverfurófi sem dreifist frá því að vera væg upp í alvarleg. Einhverfa F84.0 og ódæmigerð einhverfa F84.1 teljist til fötlunar þar sem alvarleiki frávika sé orðinn mjög mikill. Vægari einkenni sem teljist til einhverfurófsröskunar geti verið hamlandi í daglegu lífi fyrir einstaklinginn en teljist ekki falla undir að vera fötlun.

Við mat á einhverfueinkennum séu notuð ýmis próf svo sem ADI-greiningarviðtal, bein athugun á hegðun með ADOS áhorfsgreiningarmati, greindarprófanir, mat á aðlögunarfærni auk ýmissa annarra matslista um hegðun og líðan til að staðfesta þau frávik sem barn sé að sýna á mismunandi sviðum. Ekkert eitt próf geti sagt til um hvort barn sé með einhverfu eða ekki, heldur þurfi að fara fram þverfagleg athugun þar sem frávik séu metin heildrænt út frá þroskasögu og mörgum öðrum þáttum. Barn geti skorað yfir mörkum á einu prófi án þess þó að uppfylla skilyrði fyrir fötlunargreiningunni einhverfu F84.0 eða ódæmigerðri einhverfu F84.1. Mikilvægt sé að aðrir þættir séu skoðaðir líka (mismunagreining) til að hægt sé að ákvarða hvort þau einkenni sem barnið sé að sýna gætu skýrst af öðrum þáttum.

Teymi Tryggingastofnunar ríkisins í málefnum barna hafi yfirfarið þau gögn sem hafi legið til grundvallar umönnunarmatinu. Farið hafi fram frumgreining á einkennum á einhverfurófi sem ekki hafi verið staðfest með athugunum af opinberri þjónustustofnun á landsvísu, svo sem Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Barna- og unglingageðdeild eða Þroska- og hegðunarstöð. Hlutverk þessara stofnanna sé að sjá um greiningu barna og ungmenna með alvarlegar þroskaraskanir, atferlisraskanir og/eða geðrænan vanda sem vísað sé til athugunar að lokinni frumgreiningu. Tryggingastofnun ríkisins meti það svo að fötlunargreining sé ekki staðfest fyrr en niðurstöður frá þessum stofnunum liggi fyrir.

Litið sé svo á að drengurinn sé með einkenni á einhverfurófi og þurfi stuðning í daglegu lífi. Í samræmi við 4. gr. laga um félagslega aðstoð og reglugerð nr. 504/1997 hafi þótt viðeigandi að fella umönnun, gæslu og útgjöld vegna barnsins undir mat samkvæmt 4. flokki, enda falli þar undir börn sem séu með alvarlegar þroskaraskanir og/eða atferlisraskanir sem jafna megi við fötlun eða geðræna sjúkdóma og krefjist þjálfunar og eftirlits sérfræðinga, aðstoðar í skóla, á heimili og meðal jafnaldra. Tryggingastofnun ríkisins líti þannig á að einungis sé heimilt að gera mat samkvæmt 3. flokki eða hærri flokki þegar fyrir liggi að fram hafi farið ítarlegar athuganir með viðurkenndum prófum hjá til þess bærum aðilum og til staðar sé alvarleg fötlun. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggi fyrir sé talið að alvarleg fötlun hafi ekki enn verið staðfest og því ekki grundvöllur fyrir mati samkvæmt 3. flokki.

Umönnunarmat og umönnunargreiðslur séu hugsaðar til að koma til móts við foreldra vegna kostnaðar og umönnunar sem hljótist af meðferð og þjálfun barns umfram það sem eðlilegt geti talist. Litið sé svo á að með umönnunarmati samkvæmt 4. flokki, 25% greiðslur, sé komið til móts við foreldra vegna aukinnar umönnunar og kostnaðar vegna meðferðar sem sonur kæranda þurfi á að halda.

Í viðbótargreinargerð stofnunarinnar segir að niðurstöður T-teymis Barna- og unglingageðdeildar Landspítala á aðsendum gögnum, sem hafi verið aflað á árunum 2009 og 2013, séu: F84.5 Aspergerheilkenni. F90.0 Truflun á virkni og athygli. Kvíðaröskun ótilgreind F41.9.

Í vottorði C læknis, dags. 4. september 2015, komi fram að sonur kæranda sé greindur með einhverfu (F84.0) en beðið væri eftir lokagreiningu á vegum taugateymis Barna- og unglingageðdeildar Landspítala. Miðað við þau gögn sem liggi nú fyrir virðist þeirri greiningu vera lokið með fyrrgreindum niðurstöðum.

Talið sé að ný gögn gefi ekki tilefni til breytinga á umönnunarmati þar sem nú þegar hafi verið metið að sonur kæranda sé með einkenni á einhverfurófi og þurfi stuðning í daglegu lífi. Viðeigandi hafi þótt að fella umönnun, gæslu, og útgjöld vegna hans undir mat samkvæmt 4. flokki, enda falli þar undir börn sem séu með alvarlegar þroskaraskanir og/eða atferlisraskanir sem jafna megi við fötlun eða geðræna sjúkdóma og krefjist þjálfunar og eftirlits sérfræðinga, aðstoðar í skóla, á heimili og meðal jafnaldra. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggi fyrir sé talið að alvarleg fötlun sé enn óstaðfest og því ekki grundvöllur fyrir mati samkvæmt 3. flokki.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar umönnunarmat Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. nóvember 2015 þar sem umönnun vegna sonar kæranda var metin til 4. flokks, 25% greiðslur.

Ákvæði um umönnunargreiðslur er í 4. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í 1. mgr. þeirrar lagagreinar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hafi í för með sér tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu. Þá sé heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda barna með alvarleg þroskafrávik sem jafna megi við fötlun og barna með alvarleg hegðunarvandamál sem jafna megi við geðræna sjúkdóma.

Í 3. mgr. 4. gr. laga um félagslega aðstoð segir að Tryggingastofnun ríkisins meti þörf samkvæmt ákvæðinu og í 4. mgr. segir að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar. Gildandi reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna er nr. 504/1997, ásamt síðari breytingum.

Í 5. gr. reglugerðarinnar er mælt fyrir um fimm mismunandi flokka vegna langveikra barna og fimm flokka fatlaðra barna og barna með þroska- og atferlisraskanir. Falla alvarlegustu tilvikin í 1. flokk en þau vægustu í 5. flokk. Vegna þeirra barna sem falla í 5. flokk eru gefin út skírteini til lækkunar lyfja- og lækniskostnaðar en ekki eru greiddar sérstakar mánaðarlegar greiðslur, en það er gert vegna annarra flokka og fara þær greiðslur stighækkandi.

Í reglugerðinni er um að ræða tvenns konar flokkanir til skilgreiningar á fötlunar- og sjúkdómsstigi, annars vegar vegna umönnunar, gæslu og útgjalda vegna fatlaðra barna og barna með þroska- og atferlisraskanir og hins vegar vegna umönnunar, gæslu og útgjalda vegna langveikra barna. Fyrrnefnda flokkunin á við í tilviki sonar kæranda.

Um fyrri tegund flokkunar, þ.e. vegna umönnunar og gæslu fatlaðra barna og barna með þroska- og atferlisraskanir, segir um 3. og 4. flokk:

„fl. 3. Börn, sem vegna fötlunar þurfa aðstoð og gæslu í daglegu lífi t.d. vegna vægrar þroskahömlunar, hreyfihömlunar, sem krefst notkunar spelka og/eða hækja við ferli, heyrnarskerðingar, sem krefst notkunar heyrnartækja í bæði eyru, og verulegrar sjónskerðingar á báðum augum.

fl. 4. Börn með alvarlegar þroskaraskanir og/eða atferlisraskanir, sem jafna má við fötlun eða geðræna sjúkdóma og krefjast þjálfunar og eftirlits sérfræðinga og aðstoðar í skóla og á heimili og meðal jafnaldra.“

Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga um félagslega aðstoð metur Tryggingastofnun ríkisins umönnunarþörf og með hinu kærða mati var umönnun sonar kæranda felld undir 4. flokk, 25% greiðslur, frá 1. ágúst 2015 til 31. júlí 2018. Kærandi óskar eftir að umönnunin verði felld undir 3. flokk og byggir á því að hann hafi verið greindur á einhverfurófi samkvæmt ADOS einhverfuprófi af barnageðlækni.

Í umsókn kæranda um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna, dags. 22. júlí 2015, er að finna lýsingu á umönnun sonar hennar. Fram koma meðal annars upplýsingar um töluverða félagslega einangrun sonar hennar, samskiptaerfiðleika og erfiðleika hans við að takast á við breytingar á umhverfi sínu.

Í vottorði C barna- og unglingageðlæknis, dags. 4. september 2015, segir meðal annars:

„áframhaldandi fyrir hendi mjög mikil félagsleg einangrun og einhverfueinkenni. Enn fremur hamlandi kvíðaeinkenni. Ljóst er að B þarf á miklum stuðningi að halda í daglegu lífi, en sbr. lýsingu móður hefur ekki verið auðvelt að fá nýtandi stuðning fyrir hann. Reynd hefur verið lyfjameðferð með kvíðalyfjum en ekki verið að ganga vel vegna aukaverkana. Sótt hefur verið um lokagreiningu á vegum taugateymis Barna- og unglingageðdeildar LSH“

Sjúkdómsgreining var samkvæmt þessu vottorði bernskueinhverfa (F84.0) en í fyrra vottorði sama læknis frá 22. október 2013 var sjúkdómsgreiningin heilkenni Aspergers (F84.5). Á báðum þessum greiningum hvíldi óhjákvæmilega sá fyrirvari að lokagreining taugateymis barna- og unglingageðdeildar lægi ekki fyrir. Hún kom ekki fram fyrr en í bréfi sama læknis og D sálfræðings, dags. 11. mars 2016, þar sem teknar eru saman niðurstöður og greiningar T-teymis barna- og unglingageðdeildar Landspítala vegna sonar kæranda:

„Öxull I: F84.5 Aspergerheilkenni; F90.0 Truflun á virkni og athygli, F41.9 Kvíðaröskun, ótilgreind

Öxull II: Engin greining

Öxull III: aðlögunarfærni: Mælitala vitsmunatarfs í meðallagi, miklir styrkleikar í vinnsluhraða, aðlögðunarfærni slök

Öxull IV: Engar greiningar

Öxull V: Engar greiningar

Öxull 6/CGAS: 55 – Breytileg starfshæfni með einstaka erfiðleikasviðum eða einkennum á mörgum en ekki öllum sviðum félagsaðlögunar.“

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að farið hafi fram frumgreining á einkennum á einhverfurófi sem ekki hafi verið staðfest með athugunum af opinberri þjónustustofnun á landsvísu, svo sem eins og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Barna- og unglingageðdeild eða Þroska- og hegðunarstöð. Samkvæmt mati stofnunarinnar var sonur kæranda með einkenni á einhverfurófi og þurfti stuðning í daglegu lífi. Þegar framangreindar niðurstöður barna- og unglingageðdeildar Landspítala lágu fyrir, taldi Tryggingastofnun þær ekki leiða til breytinga á mati stofnunarinnar.

Það liggur fyrir að sonur kæranda hefur fengið eftirfarandi greiningar: Aspergerheilkenni, ótilgreinda kvíðaröskun og truflun á virkni og athygli. Þá hefur komið fram í vottorði læknis að hann búi við einhverfueinkenni. Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, fær ráðið af gögnum málsins, þ.á m. lýsingum á umönnun sonar kæranda og læknisfræðilegum greiningum sem hann hefur fengið að ekki sé um væga þroskahömlun að ræða í tilviki hans heldur fremur alvarlega þroskaröskun og/eða atferlisröskun sem jafna má við fötlun eða geðræna sjúkdóma. Þegar af þeirri ástæðu er það niðurstaða úrskurðarnefndar að umönnun sonar kæranda sé réttilega felld undir 4. flokk í hinu kærða umönnunarmati. Undir fyrrnefndan 3. flokk falla börn sem þurfa aðstoð og gæslu í daglegu lífi, til dæmis vegna vægrar þroskahömlunar, að því marki að ástand þeirra telst til fötlunar. Úrskurðarnefndin telur að með þeim greiningum sem nú liggja fyrir frá barna- og unglingageðdeild Landspítala hafi verið staðfest að sonur kæranda búi ekki við fötlun að þessu marki.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. nóvember 2015, um mat vegna umönnunar sonar kæranda.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins í máli A, um að fella umönnun vegna sonar hennar, B, undir 4. flokk, 25% greiðslur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum