Hoppa yfir valmynd
23. maí 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 12. maí 2011

Mál nr. 31/2011                   Eiginnafn:     Árún

 

Hinn 12. maí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 31/2011 en erindið barst nefndinni 4. maí:

Eiginnafnið Árún (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Árúnar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Árún (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 34/2011                    Eiginnafn:     Katý

 

Hinn 12. maí  2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2011 en erindið barst nefndinni 11. maí:

Eiginnafnið Katý (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Katýjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Katý (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 35/2011                    Eiginnafn:     Ígor

Hinn 12. maí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 35/2011 en erindið barst nefndinni 11. maí:

Eiginnafnið Ígor (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ígors, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ígor (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum