Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 472/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 472/2021

Fimmtudaginn 16. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. ágúst 2021, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. júní 2021. Þann 7. júlí 2021 barst Vinnumálastofnun beiðni frá kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleyistrygginga frá og með 1. júní 2021. Með ákvörðun, dags. 3. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100% en beiðni kæranda um afturvirkar greiðslur hafnað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. september 2021. Með bréfi, dags. 20. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 19. október 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann óski eftir því að réttur hans til atvinnuleysisbóta miðist við þann dag sem hann hafi orðið atvinnulaus, þ.e. þann 1. júní 2021. Kæranda hafi verið synjað um afturvirkar greiðslur atvinnuleysisbóta frá þeim degi sem hann hafi orðið atvinnulaus en umsókn hans um atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi hafi verið samþykkt. Kærandi hafi verið að leita sér að starfi frá því að hann hafi fengið uppsagnarbréfið í trú um að hann myndi fljótlega fá vinnu í sínu fagi. Kærandi hafi ekki haft trú á því að hann myndi þurfa að fara á atvinnuleysisbætur. Þá hafi hann ekki haft vitneskju um að hann þyrfti að sækja um fyrir ákveðinn tíma eða hvort það væri sjálfvirkt. Ef kærandi hefði vitað af þessari reglu hefði hann sótt um á fyrsta degi til öryggis. Kærandi greinir frá því að hann sé lesblindur og það sé erfitt fyrir hann að afla sér slíkra upplýsinga.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 7. júlí 2021 hafi Vinnumálastofnun borist beiðni frá kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi hafi óskað eftir því að fá greiddar atvinnuleysisbætur frá 1. júní 2021, það er frá þeim tíma þegar hann hafi lokið störfum hjá B, en ekki 29. júní 2021, það er þegar stofnuninni hafi borist umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Í skýringum kæranda komi meðal annars fram að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að greiðslur atvinnuleysisbóta miðuðust við umsóknardag. Kærandi kveðist ekki hafa kynnt sér það. Með bréfi, dags. 3. ágúst 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysistryggingar hefði verið samþykkt frá 29. júní 2021 en að beiðni hans um að fá greiðslur atvinnuleysisbóta aftur fyrir umsóknardag hefði verið hafnað.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsóknardag.

Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í [30 mánuði] frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendi á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 29. júní 2021 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi fyrst rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga frá 29. júní 2021 og að hafna beri beiðni kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. júní 2021.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 29. júní 2021 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. ágúst 2021, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum