Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2001 Heilbrigðisráðuneytið

Forsíðufrétt - Fyrirkomulag sjúkraflugs


05.04. Fyrirkomulag sjúkraflugs
Íslandsflug hf. hefur tekið að sér að sinna sjúkraflugi fyrir Vestfjarða- og suðursvæði. Samgönguráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Tryggingastofnun ríkisins gerðu samkomulag við félagið um sjúkra- og áætlunarflug í gær, í kjölfar þess að bundinn var endi á samning við Leiguflug Ísleifs Ottesen e.h.f. um þessa þjónustu. Leiguflug Ísleifs Ottesen sinnti samkvæmt samningi áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Gjögurs og áætlunar- og sjúkraflugi á Vestfjarða- og suðursvæði en þessi þjónusta er nú öll í höndum Íslandsflugs.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum