Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 52/2020 Úrskurður 16. júlí 2020

Mál nr. 52/2020                     Eiginnafn:      Melódía (kvk.)

 

Hinn 16. júlí 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 52/2020 en erindið barst nefndinni 25. júní.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Melódía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Melódíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Melódía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum