Hoppa yfir valmynd
27. október 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um styrk til sveitarfélaga vegna barna á flótta

Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur fé til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta eru búsett. Styrkurinn nær til allra barna sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2021. Markmiðið með fjárstuðningnum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.

Veittur er fjárstuðningur til verkefna sem snúa að

  1. stuðningi innan skóla og frístundastarfs,
  2. stuðningi við barnaverndarnefndir og önnur úrræði fyrir fjölskyldur á flótta.

Fjárstuðningurinn miðar við þann fjölda barna sem er með alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum í hverju sveitarfélagi. Hægt er að sækja annars vegar um 125.000 kr. styrk vegna hvers barns sem er yngra en 6 ára og hins vegar 200.000 kr. styrk vegna barns sem er eldra en 6 ára.

Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember. Tekið skal fram að opnað verður fyrir umsóknir á ný í ágúst 2023 og þá geta sveitarfélög sótt um fyrir börn sem hafa flust til sveitarfélagsins eftir að fyrri umsókn var send til mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum