Hoppa yfir valmynd
3. júní 2022 Forsætisráðuneytið

Ráðherranefnd um málefni innflytjenda og flóttafólks

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um skipun tímabundinnar ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks. Í nefndinni munu auk forsætisráðherra eiga fast sæti dómsmálaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Náin samvinna verður einnig við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og aðra ráðherra eftir atvikum á starfstímanum.

Það sem af er ári hafa tæplega 1.700 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi og hefur sá fjöldi aldrei verið meiri. Fjöldi flóttafólks í heiminum í ár er kominn yfir 100 milljónir. Spár benda einnig til þess að þvingaðir fólksflutningar muni aukast á næstu árum vegna loftslagsbreytinga og versnandi umhverfisaðstæðna. Árið 2021 voru um 15,5% íbúa landsins innflytjendur og gangi hagvaxtarspár eftir er ljóst að erfitt verður að manna þau störf sem verða til á næstu árum með innlendu vinnuafli.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna segir m.a. að þátttaka fólks af erlendum uppruna auki fjölbreytileika, efli íslenskt samfélag og menningu og sé ein forsenda fyrir vexti efnahagslífsins. Tryggja þurfi að innflytjendur sem hér vilji búa og starfa fái tækifæri til aðlögunar og geti nýtt hæfileika sína og þekkingu.

Meðal áhersluatriða í málaflokknum sem birtast í stjórnarsáttmála er að mótuð verði skýr og heildstæð stefna í málefnum útlendinga, rík áhersla verði lögð á stuðning til aðlögunar við börn af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra og að lög um útlendinga og lög um atvinnuréttindi útlendinga verði endurskoðuð. Mikilvægt er að gæta að jafnvægi milli ólíkra þátta, þ.e. í fyrsta lagi mannúðarsjónarmiða, í öðru lagi sjónarmiða um efnahagslega hagsæld, lífsgæði og vöxt og í þriðja lagi þarf að meta mannaflaþörf hér á landi til að tryggja velferðarsamfélag og velmegun þjóðar til framtíðar. 

Einnig er lögð áhersla á að umsóknarferli um dvalar- og atvinnuleyfi einstaklinga sem sinna störfum sem krefjast sérfræðiþekkingar verði einfaldað. Þá verði unnið að því að auka hraða og skilvirkni í afgreiðslu mála í samræmi við flóttamannasamning Sþ, áfram verði aukið við móttöku kvótaflóttafólks og unnið verði að því að auka traust og gagnsæi um ákvarðanir útlendingayfirvalda.

Hlutverk ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks verður að vinna markvisst að framangreindum áherslum stjórnarflokkanna. Málefni innflytjenda varða málefnasvið margra ráðuneyta auk sveitarfélaga og ýmissa stofnana. Því er nauðsynlegt að tryggja öfluga samvinnu og samhæfingu í málaflokknum og er skipun ráðherranefndar liður í því.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum