Hoppa yfir valmynd
16. mars 2020 Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Heilbrigðisráðuneytið

Úrskurður nr. 8/2020

I. Beiðni um undanþágu.

Með tölvupósti, dags. 14. mars 2020, barst heilbrigðisráðuneytinu beiðni frá Fjölbrautaskólanum á Norðurlandi vestra um undanþágu frá auglýsingu nr. 216/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

Í beiðninni kemur fram að skólinn hafi þegar gert ráðstafanir til þess að öll bókleg kennsla fari fram á Teams fyrir bóknámsnemendur skólans. Eins og öllum megi vera ljóst sé ekki mögulegt að hafa sama fyrirkomulag þegar kemur að verklegri kennslu. Lokun verknámsdeilda í svo langan tíma geti leitt til þess að ekki verði mögulegt fyrir nemendur að ljúka námi sínu á þessari önn. Hér sé því um gríðarlega mikið hagsmunamál að ræða fyrir umrædda nemendur. Óskað sé eftir undanþágu fyrir málm-, raf- og tréiðnadeild. Jafnframt kemur fram að ýtrustu varkárni verði beitt; hver deild muni hafa sérinngang inn á sitt vinnusvæði; engin samskipti verði milli deilda; að hámarki verði 12 nemendur í kennslustund hverju sinni, auk kennara; nánd milli nemenda og kennara verði að minnsta kosti yfir tveir metrar; aðgengi að handþvotti og handspritti verði gott; vinnuaðstaða nemenda þrifin og sótthreinsuð á hverjum degi.


II. Umsagnir.

Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir umsögnum mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sóttvarnasviðs Embættis landlæknis um undanþágubeiðnina. Í umsögn mennta- og menningarmálaráðuneytisins segir meðal annars eftirfarandi:

„Með því að heimila undanþágu frá auglýsingu á skólastarfi vegna farsóttar á þeim grundvelli að lokun verknámsdeilda í langan tíma geti leitt til þess að nemendur geti ekki lokið námi sínu á þessari önn mun setja fordæmi fyrir alla verknámsskóla á landinu og þá með þeim hætti að markmið auglýsingarinnar nái ekki fram að ganga. Skólahald tekur bæði til bóklegs og verklegs náms og uppi hafa verið ýmsar tillögur um með hvaða hætti skuli að leysa verknámsþátt í þessum einstöku aðstæðum sem heimurinn er í. Tillögur hafa verið uppi að leggja áherslu á bóklega þáttinn í fjarkennslu á meðan á takmörkun stendur og þegar henni líkur, að öllum líkindum 12. apríl nk., mun áherslan vera á verklega þáttinn í náminu.

Með vísan til jafnræðis, þess fordæmis sem ákvörðunin mögulega felur í sér og að aðrar lausnir eru hugsanlegar leggur mennta- og menningarmálaráðuneytið til að beiðninni verði hafnað. Ráðuneytið gerir umsögn þessa á þeim forsendum sem snýr að menntamálum í landinu en ef umsögn sóttvarnarlæknis er önnur mun ráðuneytið ekki leggjast gegn niðurstöðu hans.“

Af hálfu sóttvarnalæknis kom fram að þótt beiðnin væri vissulega skiljanleg og hagsmunir verknámsnema umtalsverðir yrði ekki séð af umsókninni að þeir gætu vegið þyngra en þeir almannahagsmunir sem ákvörðun um takmörkun skóla væri ætlað að vernda. Í þeim efnum var meðal annars minnt á að ákvörðunin undanskildi ekki verknám frá lokun framhaldsskóla. Því gæti sóttvarnalæknir ekki mælt með því að undanþágan yrði veitt.


III. Niðurstaða.

Í 5. gr. auglýsingar nr. 216/2020 segir að framhalds- og háskólum skuli lokað og fjarkennslu skuli sinnt eftir því sem unnt er og samkvæmt nánari ákvörðun menntamálayfirvalda. Samkvæmt 6. gr. getur heilbrigðisráðherra veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Við mat á því hvort heimila eigi undanþágu samkvæmt ákvæðinu þarf því meðal annars að líta til þess hvort undanþágan sem slík stefndi í hættu ráðstöfunum til að varna útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins en jafnframt hvort undanþágan yrði fordæmi sem ekki væri unnt að fylgja eftir vegna þess að samþykkt allra sambærilegra tilvika myndi grafa undan framangreindum ráðstöfunum. Þá telur ráðuneytið, í ljósi auglýsingar nr. 217/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, að undanþága yrði almennt ekki veitt nema með þeim skilyrðum sem gilda um takmörkun á samkomum. Að mati ráðuneytisins kemur einkum til greina að veita undanþágur þegar um mjög sérstakar aðstæður er að ræða og að takmörkun á skólahaldi kæmi sérstakleg þungt niður á viðkomandi nemendum, kennurum eða aðstandendum, svo sem í tilvikum þeirra sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu. 
Heilbrigðisráðuneytið hefur farið yfir umsóknina og umsagnir umsagnaraðila. Umsóknin er einkum byggð á sjónarmiðum sem eiga við um flest allt verknám en hún er sett fram með skilyrðum sem virðast uppfylla ákvörðun um takmörkun á samkomum. Þrátt fyrir að ráðuneytið geti fallist á að takmörkun skólahalds í framhaldsskólum komi almennt þyngra niður á verknámi en bóknámi telur ráðuneytið ekki unnt að veita undanþágu á þeim grundvelli eingöngu, enda kynni það að leiða til þess að veita þyrfti fjölda nemenda sambærilega undanþágu í verknámsskólum um allt land. Það er því mat ráðuneytisins að það samræmist ekki markmiðum þeirra opinberu sóttvarnaráðstafana sem gripið hefur verið til að veita umbeðna undanþágu. Undanþágubeiðninni er því hafnað.

ÚRSKURÐARORÐ

Beiðni Fjölbrautaskólans á Norðurlandi vestra um undanþágu frá auglýsingu nr. 216/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum