Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2016 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundar með varautanríkisráðherra Rússlands

Efnahagsmál, tvíhliða samskipti Íslands og Rússlands, svæðisbundin málefni og alþjóðamál voru til umfjöllunar á fundi Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra og Vladímír Títov varautanríkisráðherra Rússlands sem fram fór í Ráðherrabústaðnum í dag.

Ráðherrarnir ræddu meðal annars leiðir til að auka möguleika á viðskiptum milli landanna auk þess sem málefni norðurslóða og önnur svæðisbundin samvinna var til umfjöllunar. Þá ræddu ráðherrarnir öryggismál í Evrópu og stöðuna við botn Miðjarðarhafs. ,,Rússland er mikilvægt samstarfsríki Íslands á mörgum sviðum og viljinn til góðra samskipta er gagnkvæmur. Svæðisbundið samstarf er mjög gott, til dæmis á norðurslóðum og innan svæðisbundinna stofnanna. Á fundinum gafst okkur kærkomið tækifæri til að ræða um ýmis mál, þar með talin viðskipti milli þjóðanna sem við viljum auka þrátt fyrir fyrir erfiðar aðstæður. Þá var áhugvert að ræða við Títov og skiptast á skoðunum um brýn pólitísk úrlausnarefni á sviði alþjóðamálanna," segir Lilja.

Fundurinn var liður í reglulegu samráði Íslands og Rússlands og fundaði Títov jafnframt með embættismönnum utanríkisráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum