Hoppa yfir valmynd
5. mars 2009 Dómsmálaráðuneytið

Ákvörðun um upptöku tímabundins landamæraeftirlits á innri landamærum Schengen-svæðisins

Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins fari fram í Flugstöð Leifs Eiríkssonar dagana 5.-7. mars 2009.

Ákvörðun þessi er tekin í samræmi við heimild í 29. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri.

Ákvörðunin hefur verið tilkynnt Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, samstarfsríkjum innan Schengen-samstarfsins og hlutaðeigandi yfirvöldum innanlands.

Aðildarríki Schengen-samstarfsins grípa til aðgerða af þessu tagi, þegar vísbendingar hafa borist um að án þeirra aukist hætta á að vegið sé að öryggi borgara þeirra.

Leitast verður við að halda óþægindum fyrir almenna flugfarþega í lágmarki. Ráðlegt er fyrir þá sem ætla að koma til Íslands þessa daga að hafa persónuskilríki meðferðis.

Tilkynning sem birtist á vef Lögbirtingablaðsins 5. mars 2009. (pdf-skjal)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum