Hoppa yfir valmynd
1. maí 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ráðstefna um rekstur og stjórnun ríkisstofnana

Fjármálaráðuneytið efndi til ráðstefnu um rekstur og stjórnun stofnana í tilefni af vali á ríkisstofnun til fyrirmyndar sem fram fór 14. maí sl. Ráðstefnan var ætluð forstöðumönnum, fjármálastjórum og starfsmannastjórum ríkisstofnana og þeim starfsmönnum í fagráðuneytum sem koma að rekstri stofnana. Ráðstefnan var haldin á Grand hótel þann 21. maí 2004 og stóð frá kl. 13.10 til 16.00.

Dagskrá:

Kl. 13.10 Af hverju að velja ríkisstofnun til fyrirmyndar?
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra

Kl. 13.20 Að vera til fyrirmyndar – hvað þarf til?
Árni Sigfússon, form. valnefndar fjármálaráðherra 2008

Kl. 13.40 Stjórnun og rekstur fyrirmyndastofnunar 2008
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Kl. 14.10 Að takast á við breytingar
Már Vilhjálmsson, skólameistari Menntaskólans við Sund

Kl. 14.30 Eiga nútíma stjórnunaraðferðir við í rekstri smárra ríkisstofnana?
Guðlaugur Einarsson, aðstoðarforstjóri Geislavarna ríkisins

Kl. 14.50 Kaffiveitingar

Kl. 15.20 Mikilvægi kostnaðargreiningar í rekstri
Margrét I Hallgrímsson, sviðstjóri hjúkrunar, Kvennasviði Landspítala háskólasjúkrahúss

Kl. 15.40 Samræming eftirlits og þjónustu
Þórður Ásgeirsson, Fiskistofustjóri

Kl. 16.00 Ráðstefnuslit

Ráðstefnustjóri var Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum