Hoppa yfir valmynd
7. júní 2019 Forsætisráðuneytið

Handverk og hönnun hlýtur styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar

Merki Handverks og hönnunar - mynd

Ríkisstjórnin ákvað að veita 6 m. kr. af ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins ,,Handverk og hönnun“ á fundi sínum í morgun. Markmiðið með styrknum er að stuðla að eflingu handverks og listiðnaðar hér á landi.

„Handverk og hönnun“ var í upphafi verkefni sem hrint var af stað af forsætisráðuneytinu árið 1994 en síðar rekið sem samstarfsverkefni forsætisráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis og félagsmálaráðuneytis, og fjármagnað af þeim. Árið 2007 var „Handverk og hönnun“ gert að sjálfseignarstofnun og mennta- og menningarmálaráðuneyti falið að gera samning við hana um ráðstöfun rekstrarframlags, sem greiðast skyldi af fjárlögum hvers árs.

Markmið gildandi samnings er að stuðla að eflingu handverks og listiðnaðar, auka gæðavitund með ráðgjöf og upplýsingagjöf; auka skilning á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi; og kynna íslenskt handverk og íslenskan listiðnað.

„Handverk og hönnun“ hefur frá upphafi sinnt markaðs- og kynningarstarfi, námskeiða- og sýningahaldi, fræðslu og ráðgjöf og þjónar tugum ef ekki hundruðum smárra fyrirtækja eða einyrkja sem margir eru á landsbyggðinni og konur þar í meirihluta.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum