Hoppa yfir valmynd
26. júní 2015 Innviðaráðuneytið

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að áætluðu uppgjöri framlaga til sveitarfélaga á árinu 2015 til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá  Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2014, sem gilda fyrir árið 2015. Þar er tekið tillit til aðlögunar að breytingum á fasteignamati vegna atvinnuhúsnæðis, sbr. ákvæði laga nr. 135/2014 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið  mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2015.

Endurskoðað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna á árinu nemur samtals um 3.459,1 m.kr. og er um að ræða 3,3% hækkun á úthlutun framlaganna frá þeirri áætlun sem birt var í október sl. Um 60% af fyrri áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 2.009,3 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 1.449,7 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 483,2 m.kr. í hvert sinn.

Þær breytingar sem orðið hafa á framlaginu frá áætlun, sem birt var  í október sl., má að mestu leyti rekja til laganna nr. 354/2014 og breytinga á álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum