Hoppa yfir valmynd
19. júlí 2002 Utanríkisráðuneytið

Viðtalstímar sendiherra

Nr. 074

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.

Hörður H. Bjarnason, sendiherra, fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 29. júlí kl. 10:30 til 12:00. Sendiskrifstofan gegnir einnig hlutverki sendiráðs gagnvart Páfagarði.

Helgi Ágústsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 29. júlí n.k. kl. 14:00 - 16:00. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Ísrael, Litháen, Möltu, Rúmeníu og Tyrklands.

Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 31. júlí n.k. kl. 10:00 til 12:00. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Albaníu, Bangladess, Búlgaríu, Júgóslavíu (Serbía-Svartfjallaland), Pakistan og Sri Lanka.

Jón Egill Egilsson, sendiherra Íslands í Berlín, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu föstudaginn 2. ágúst n.k. kl. 14:00 - 16:00. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Króatíu, Póllands og Sviss.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 19. júlí 2002


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum