Hoppa yfir valmynd
27. mars 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 23/2018 Úrskurður 20. mars 2018

Mál nr. 23/2018                    Eiginnafn/Millinafn: Lóni

 

                                  

 

Hinn 20. mars 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2018 en erindið barst nefndinni 13. mars.

 

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Lóni hefur nefnifallsendingu og fullnægir þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

Eiginnafnið Lóni (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lóna, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Lóni er hafnað. Beiðni um eiginnafnið Lóni (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum