Hoppa yfir valmynd
8. október 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Hvetur ungar konur til að fara í krabbameinsskoðun

Heilbrigðisráðherra opnar vef Krabbameinsfélags Íslands
Heilbrigðisráðherra opnar nýjan vef Krabbameinsfélags Íslands

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hvetur ungar konur til að mæta reglulega í krabbameinsskoðun hjá Krabbameinsfélaginu.

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, tók í dag í notkun nýjan og endurbættan vef Krabbameinsfélags Íslands og lét þá þessi hvatningarorð falla. Heilbrigðisráðherra segist sjálf hafa komið í leitarstöð félagsins nokkuð reglulega frá því að hún var tvítug og þær heimsóknir hafi skipt sköpum í hennar lífi. „Ég hvet alla, en þó sérstaklega ungar konur til að vera duglegar að kynna sér vefinn og að mæta reglulega í skoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Vefurinn er miðill unga fólksins, þess vegna vænti ég þess að nýr og viðmótsþýður vefur Krabbameinsfélagsins gagnist vel til að koma upplýsingum og fræðslu til nýrra kynslóða.“

Vef Krabbameinsfélagsins er ætlað að vera tæki fyrir þá sem leita upplýsinga um krabbamein og fyrir þá sem þurfa að nýta sér þjónustu félagsins.

Með sama hætti og Krabbameinsfélagið vill vera í fylkingarbrjósti í baráttunni gegn krabbameini á Íslandi vill félagið að vefur þess verði miðstöð þekkingar og upplýsinga um krabbamein.

Vefurinn er unnin í samvinnu fyrirtækjanna Sjá ehf. og TM Software. Við undirbúning síðunnar var meðal annars leitað álits fólks sem greinst hefur með krabbamein, aðstandendur, aðildarfélög Krabbameinsfélagsins og fagfólks. Á vefnum er lögð áhersla á einfalda og þægilega framsetningu á fræðslu um krabbamein og upplýsingum um þjónustu Krabbameinsfélagsins. Meðal annars er hægt að gerast styrktaraðili Krabbameinsfélagsins í gegnum vefinn og panta tíma í krabbameinsleit.

„Ég bind miklar vonir við að ný heimasíða auki og bæti tengsl okkar við þá sem nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins og þá ekki síst yngri kynslóðina. Heimasíðan á að vera síungur og lifandi miðill sem tengir Krabbameinsfélag Íslands við íslensku þjóðina og það umhverfi sem við störfum í,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum