Hoppa yfir valmynd
19. október 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Lést af völdum inflúensu

Átján ára stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdu inflúensunnar A(H1N1). Í fréttatilkynningu frá sóttvarnalækni og ríkislögreglustjóra sem send var út í dag segir að stúlkan hafi veikst “fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar A(H1N1). Rétt er að taka fram að öll umönnun og meðferð, sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala, var mjög góð og í samræmi við aðstæður.

Inflúensan færist enn í aukana, einkum á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á landsbyggðinni. Undanfarnar þrjár vikur lætur nærri að staðfest tilfelli hafi tvöfaldast í hverri viku miðað við fjöldann í vikunni þar á undan. Álag hefur að sama skapi aukist talsvert á starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, bæði í heilsugæslunni og á Landspítala.

Um hádegisbil í dag voru 26 sjúklingar á Landspítala vegna inflúensunnar, þar af fjórir á gjörgæsludeild. Frá því á föstudaginn var, 16. október, hafa fimm inflúensusjúklingar verið lagðir inn á spítalann og þrír verið útskrifaðir á sama tíma.

Um 60 manns hafa verið lagðir inn á Landsspítala vegna inflúensunnar frá upphafi faraldursins.

Frá 29. júní til 18. október 2009 höfðu borist alls 3.660 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfest inflúensutilfelli á Íslandi samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Staðfest tilfelli eru orðin alls 479."



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum