Hoppa yfir valmynd
22. október 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Hundruð milljóna sparnaður ríkisins

Lyfjaútgjöld ríkisins lækka um tæplega átta hundruð milljónir króna á árinu vegna reglugerðarbreytingar sem tók gildi 1. mars 2009. Þetta er mat Sjúkratrygginga Íslands en í nýlegu fréttabréfi stofnunarinnar segir, að reglugerðarbreyting sem Ögmundur Jónasson, þáverandi heilbrigðisráðherra, gaf út og tók gildi 1. mars skili væntanlega 780 milljóna króna sparnaði fyrir ríkið.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga breyttist 1. mars sl. í þá veru að sjúkratryggingar taka þátt í ódýrustu lyfjunum í tveimur lyfjaflokkum samkvæmt tilteknum reglum, þ.e. sýruhemjandi (PPI)- og blóðfitulækkandi lyfjum. Lyfjakostnaður hefur lækkað um 295 milljónir króna vegna PPI-lyfja og um 175 milljónir króna vegna blóðfitulækkandi lyfja á sex mánaða tímabili eftir að reglugerð ráðherra tók gildi.

Sjá nánar fréttabréf Lyfjadeildar SÍ: 10._frettabref_lyfjadeildar (pdf - opnast í nýjum glugga)

 

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum