Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Fyrsti tilboðsmarkaður ársins 2022 með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. apríl.  Matvælaráðuneytinu bárust 162 gild tilboð um kaup og voru sölutilboð 19 talsins.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 315 kr. fyrir hvern lítra.   Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 315 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 19.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 162.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 10.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.309.697 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru      7.830.349 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.309.697 lítrar að andvirði 412.554.555,- kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 65.481 lítrar.   Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 13.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum