Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2022 Utanríkisráðuneytið

Konur, líf, frelsi – einkunnarorð ljósagöngunnar á föstudag

Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram föstudaginn 25. nóvember kl. 17:00 á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar upphaf sextán daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi er í forsvari fyrir ásamt fjölda annarra öflugra félagasamtaka hér á landi.

Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er: Konur, líf, frelsi, sem er jafnframt slagorð mótmælanna sem hafa staðið yfir í Íran í meira en mánuð. Þau sem leiða gönguna í ár eru Zohreh Aria frá Íran og Zahra Mesbah frá Afganistan. Auk þeirra munu fleiri einstaklingar frá Afganistan og Íran ganga fremst í göngunni.

Alþjóðlega sextán daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi beinir kastljósinu í ár að kvennmorðum (e. femicide). Samkvæmt tölum frá UN Women voru 81 þúsund konur um allan heim myrtar árið 2020, 58 prósent þeirra voru myrtar af maka eða fjölskyldumeðlimi. Þetta samsvarar því að kona sé myrt á heimili sínu á ellefu mínútna fresti.

„Kvennmorð eru gróf brot á grunnmannréttindum kvenna og rétti þeirra til lífs, frelsis og öryggis. Í tilfellum Afganistan og Íran, eru kvennmorð einnig framin af ógnarstjórn ríkjanna m.a. fyrir brot á lögum sem takmarka mannréttindi þeirra. Með því að taka þátt í Ljósagöngunni í ár, sýnum við samstöðu með því hugrakka fólki sem leggur líf sitt í hættu í þágu kvenréttinda.“ segir í frétt UN Women.

Gangan hefst klukkan 17:00 á Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnarsonar og gengið verður suður Lækjargötu, upp Amtmannsstíg að Bríetartorgi. Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.

Á Bríetartorgi verður síðan boðið upp á heitt kakó og tónlistaratriði. Kerti verða seld á staðnum á 500 kr.

UN Women á Íslandi hvetur öll til að mæta og sýna samstöðu.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum