Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2023 Innviðaráðuneytið

Björgvin Þorsteinsson ráðinn verkefnisstjóri Sundabrautar

Björgvin Þorsteinsson - mynd

Björgvin Þorsteinsson hefur verið ráðinn til Vegagerðarinnar sem verkefnisstjóri Sundabrautar. Björgvin mun vinna fyrir verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð var af Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra, á síðasta ári.  

Næstu skref undirbúnings Sundabrautar eru vinna við mat á umhverfisáhrifum, frekari útfærsla valkosta, samráð við hagsmunaaðila og undirbúningur nauðsynlegra breytinga á  skipulagsáætlunum með það að markmiði að hægt sé að hefja framkvæmdir við Sundabraut eigi síðar en árið 2026 og að þeim verði lokið árið 2031. Gert er ráð fyrir að Sundabraut verði fjármögnuð með gjaldtöku af umferð í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi árið 2020.  

Verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar skipa eftirtalin: 

  • Guðmundur Valur Guðmundsson, formaður, fulltrúi Vegagerðarinnar,
  • Bergþóra Þorkelsdóttir, fulltrúi Vegagerðarinnar,
  • Árni Freyr Stefánsson, fulltrúi innviðaráðuneytis,
  • Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, fulltrúi Reykjavíkurborgar,
  • Sævar Freyr Þráinsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Björgvin Þorsteinsson er verkfræðingur að mennt og hefur starfað við verkefnastjórn stórra og fjölþjóðlegra verkefna undanfarin 25 ár í Noregi, Ástralíu og á Íslandi. Hann hefur störf hjá Vegagerðinni í febrúar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum