Hoppa yfir valmynd
25. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku

Björungarsveitir leggja nótt við dag í Mósambík og víðar. Ljósmynd: WFP - mynd

Fórnarlömb ofsaflóða í sunnanverðri Afríku telja 5,3 milljónir íbúa. Tíu dögum eftir hörmungarnar berjast hjálparsveitir við að koma nauðþurftum til fólks á flóðasvæðunum. Í morgun var staðfest að 705 væru látnir, flestir í Mósambík þar sem fellibylurinn Idai gekk á land við borgina Beira. Manntjón varð einnig í Malaví, Simbabve og Madagaskar. Endanlegar tölur um þá sem fórust í hamförunum verða ekki ljósar fyrr en vatn tekur að sjatna á flóðasvæðunum sem ná yfir rúmlega tvö þúsund ferkílómetra.

Á vef Rauða krossins segir að starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins vinni nótt sem nýtan dag við það að bjarga mannslífum. Fjölskyldur sem misst hafi allt sitt hafist nú við í fjöldahjálparstöðvum. Rauði krossinn á Íslandi tekur þátt í samræmdu átaki Rauða kross hreyfingarinnar vegna ofsaflóðanna í sunnanverðri Afríku

Þjóðirnar sem hafa orðið fyrir barðinu á ofsaflóðunum eru með þeim fátækustu í heimi. Íbúar á flóðasvæðinu lifa margir hverjir á sjálfsþurftarbúskapi. „ Á þessum slóðum þekkir fólk þessar hörmulegar afleiðingar loftslagsbreytinga því miður vel og ljóst er að lífsviðurværi margra er tapað. Umfang flóðanna nú er óvenjumikið og eru meira en 228 þúsund hektarar lands undir vatni. Á þessum tímapunkti er þörfin mest fyrir húsaskjól, mat, öruggt drykkjarvatn og aðgengi að hreinlætis- og salernisaðstöðu,“ segir í frétt Rauða krossins.

Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfsmánans hefur þegar sent útkall til allra landsfélaga þar sem óskað er eftir aðstoð. Ljóst er að neyðin er gríðarleg á þessu svæði þar sem fólk er berskjaldað og innviðir oft veikir. Rauði krossinn á Íslandi hefur í gegnum árin starfrækt verkefni á þessum svæðum, t.d. með uppbyggingu á heilsugæslu, öruggu drykkjarvatni og aðgengi að hreinlætis- og salernisaðstöðu.  Rauði krossinn á Íslandi hefur þegar sent einn sendifulltrúa á svæðið vegna flóðanna og er í viðbragsstöðu að senda fleiri.

Þú getur stutt starf Rauða krossins í sunnanverðri Afríku með 2900 kr. framlagi með því að senda SMS-ið HJALP í númerið 1900.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum