Hoppa yfir valmynd
14. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýst eftir persónulegum talsmönnum fatlaðs fólks

Vilt þú gerast persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings?

Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna, á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar skv. 7. grein laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá 2011. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu. Um launalaust starf er að ræða en tilfallandi kostnaður er greiddur.

Námskeið fyrir áhugasama

Þeir sem hafa áhuga á að gerast persónulegir talsmenn eru beðnir um að hafa samband við réttindagæslumann fatlaðs fólks á sínu svæði fyrir 8. janúar nk. og munu í framhaldinu fá upplýsingar um námskeið vegna fyrrgreindrar fræðslu.

Réttindagæslumaður mun veita frekari upplýsingar um hlutverk persónulegs talsmanns sé þess óskað. Jafnframt er vísað á nánari upplýsingar í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og í reglugerð um persónulega talsmenn fatlaðs fólks nr. 972/2012.

Upplýsingar um réttindagæslumenn fatlaðs fólks: 

Reykjavík og Seltjarnarnes
Magnús Þorgrímsson
Sími: 858 1550
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Borgartúni 22, 2. hæð, 105 Reykjavík 

Kristjana Sigmundsdóttir
 Sími: 858 1627
 
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Borgartúni 22, 2. hæð, 105 Reykjavík 

Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Mosfellsbær og Kjós
Jarþrúður Þórhallsdóttir
Sími: 858 1753
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi 

Hafnarfjörður og Suðurnes
Rósa Hrönn Árnadóttir
Sími: 858 1798
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi 

Vesturland og Vestfirðir
Jón Þorsteinn Sigurðsson
Sími: 858 1939
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Norðurland
Guðrún Pálmadóttir
Sími 858 1959
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Skipagötu 14, 600 Akureyri

Austurland
Sigurlaug Gísladóttir
Sími 858 1964
Netfang: [email protected]
Aðsetur: Tjarnarbraut 39a,  700 Egilsstöðum

Suðurland
Sigrún Jensey Sigurðardóttir
Sími  858 2142
Netfang:
[email protected]                                                                                                             Aðsetur: Sandvíkursetur, Bankavegi, 800 Selfossi 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum