Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Björgunarsveitir fá nýjar færanlegar rafstöðvar til að efla fjarskiptaöryggi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fær leiðsögn um færanlegu rafstöðvarnar hjá Þórhalli Ólafssyni, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, og Þór Þorsteinssyni, formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, færði í dag fulltrúum þrettán björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar nýjar færanlegar rafstöðvar við athöfn í húsakynnum Neyðarlínunnar á Hólmsheiði. Björgunarsveitir Landsbjargar fá allt í allt rúmlega 30 nýjar færanlegar rafstöðvar á þessu ári. Tilgangurinn er að efla rekstraröryggi í fjarskiptum þegar óveður geisa eða hamfarir verða og tryggja eins og kostur er að hægt verði að hringja eftir aðstoð í neyð og kalla út viðbragðsaðila. Með því að fjölga færanlegum rafstöðvum og staðsetja hjá björgunarsveitum verður hægara að koma rafmagni aftur á þar sem þörf krefur og bæta þannig lífsgæði fólks. 

Afhending færanlegra rafstöðva markar upphaf á öðrum áfanga í átaki stjórnvalda um úrbætur á fjarskiptainnviðum eftir mikil óveður í desember 2019. Í fyrri áfanga var varaafl bætt á 68 fjarskiptastöðvum, einkum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Í þeim síðari verður huga að fjarskiptastöðvum á Suðurlandi, Vesturlandi og suðvesturhorninu. Færanlegar rafstöðvar bætast við net af föstum rafstöðvum um land allt. Þegar átakinu lýkur mun samanlagt afl allra varaaflstöðvanna nema um 2 MW. Meðalafl fastra rafstöðva er um 20 KW en í færanlegum rafstöðvum um 15 kW.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti í fyrravor að verkefnið fengi 275,5  milljóna kr. fjárveitingu árið 2020 á vegum fjarskiptasjóðs. Fjárveitingin var veitt á grundvelli fjárfestingaátaks stjórnvalda til að sporna jafnframt gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins.

„Færanlegar rafstöðvar munu þétta öryggisnet fjarskipta um land allt. Afhending þeirra er liður í stærra átaki við að stórefla öryggi í fjarskiptum. Við viljum tryggja sem best að ef fárviðri geisar eða hamfarir verða sé til staðar varaafl og nægt rafmagn. Með sameiginlegu átaki Neyðarlínunnar, Mílu og fjarskiptafyrirtækja á síðasta ári hefur grettistaki verið lyft við að bæta varaafl á fjarskiptastöðvum. Núna færum við björgunarsveitunum mikilvægan tækjabúnað til að koma rafmagni aftur á við erfiðar aðstæður. Engum er betur treystandi til þess að taka þetta verkefni að sér en sjálfboðaliðum og starfsfólki hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

„Að bæta rekstraröryggi á fjarskiptainnviðum er mikilvægt samfélagslegt verkefni sem við tökum þátt í og öxlum þannig okkar ábyrgð sem hluti af almannavarnakerfinu. Færanlegar rafstöðvar eru einnig frábært verkfæri fyrir björgunarsveitir sem þurfa oft að glíma við krefjandi verkefni og munu þær nýtast vel í ýmsum aðstæðum í framtíðinni,“ segir Þór Þorsteinsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Tveir áfangar

Neyðarlínan hefur átt í nánu samstarfi við Mílu, fjarskiptafélögin Nova, Símann og Sýn (Vodafone) og Ríkisútvarpið um aðgerðir til að tryggja samfelld fjarskipti í langvarandi rafmagnsleysi. Neyðarlínan er í forsvari fyrir verkefninu.

Varaaflsverkefninu var skipt í tvo áfanga. Í fyrra áfanganum var unnið að verkefnum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi og gerðar voru margvíslegar úrbætur á 68 fjarskiptastöðum. Settar hafa verið upp 32 nýjar fastar vararafstöðvar, rafgeymum bætt við á tíu lykilskiptistöðvum fjarskipta, tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar settir upp á 26 stöðum, ljósleiðaratengingum fjölgað og ýmsar endurbætur gerðar á öðrum stöðum. 

Vinna við annan áfanga er að hefjast og þá er stefnt á sambærilegar úrbætur á Suðurlandi, Vesturlandi og suðvesturhorninu. Þó hefur þegar tekist gera ýmsar úrbætur á Vestur- og Suðurlandi í tengslum við fyrri áfangann en þeirri vinnu verður haldið áfram.

Færanlegum rafstöðvum verður komið fyrir hjá björgunarsveitum sem eru best til þess fallnar að nýta þær þegar neyðarástand skapast. 

Staðir sem fá færanlega rafstöð í febrúar 2021 (umsjón)

  • Borgarnes (Björgunarsveitin Brák)
  • Ólafsvík (Björgunarsveitin Lífsbjörg)
  • Reykhólar (Björgunarsveitin Heimamenn)
  • Blönduós (Björgunarfélagið Blanda)
  • Dalvík (Björgunarsveitin Dalvík)
  • Akureyri (Neyðarlínan – starfsstöð á Akureyri)
  • Laugar (Slökkviliðið á Laugum)
  • Höfn (Björgunarfélag Hornafjarðar)
  • Skaftafell (Björgunarsveitin Kári)
  • Hvolsvöllur (Björgunarsveitin Dagrenning)
  • Selfoss (Björgunarfélag Árborgar)
  • Reykjanesbær (Björgunarsveitin Suðurnes)
  • Reykjavík (Neyðarlínan – starfsstöð á Hólmsheiði)

Staðir sem þegar hafa fengið færanlega rafstöð (umsjón)

  • Akranes (Míla – starfsstöð á Akranesi)
  • Patreksfjörður (Björgunarsveitin Blakkur)
  • Ísafjörður (Björgunarfélag Ísafjarðar)
  • Hvammstangi (Björgunarsveitin Húnar)
  • Siglufjörður (Björgunarsveitin Strákar)
  • Ólafsfjörður (Björgunarsveitin Tindar)
  • Húsavík (Slökkviliðið Húsavík)
  • Mývatn (Björgunarsveitin Stefán)
  • Seyðisfjörður (Björgunarsveitin Ísólfur)
  • Egilsstaðir (Björgunarsveitin Hérar)
  • Reyðarfjörður (Björgunarsveitin Ársól)
  • Kirkjubæjarklaustur (Björgunarsveitirnar Kyndill og Stjarnan)
  • Vestmannaeyjar (Björgunarfélag Vestmannaeyja)

Staðir í næsta áfanga

  • Sauðárkrókur
  • Þórshöfn
  • Borgarfjörður eystri
  • Djúpivogur
  • Vík
 
  • Nýjar færanlegar rafstöðvar sem komið hefur verið upp í tengslum við átak stjórnvalda að efla rekstraröryggi í fjarskiptum. - mynd
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, færir Þór Þorsteinssyni, formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar lykavöldin að færanlegum rafstöðvum. - mynd
  • Við afhendingu færanlegu rafstöðvanna. Fulltrúar björgunarsveita standa við bíla sína en fyrir framan frá vinstri eru: Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri hjá Mílu, Þór Þorsteinsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar 112. - mynd
  • Félagar í Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi undirbúa flutning á færanlegri rafstöð. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum