Hoppa yfir valmynd
22. mars 2024 Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 22. mars 2024

Heil og sæl, 

Tvöfaldur föstudagspóstur kemur hér. Starfsfólk utanríkisþjónustunnar hefur heldur betur ekki setið auðum höndum og við skulum skoða hvað hefur helst verið á döfinni hér heima og að heiman.

Í nýliðinni viku bar hæst ákvörðun utanríkisráðherra um að greiðsla kjarnaframlags Íslands til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) verði innt af hendi fyrir gjalddaga, þann 1. apríl næstkomandi.   

Í vikunni þar á undan var það undirritun nýs fríverslunarsamnings milli Indlands og EFTA-ríkjanna, það er Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss, sem var undirritaður í Nýju Delí. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands. Samningurinn hefur gríðarmikla þýðingu fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Asíu enda er hér um að ræða fjölmennasta lýðræðisríki heims og fimmta stærsta hagkerfið á heimsvísu. 

Þá gerði hann sterka stöðu efnahagsmála, blómlega nýsköpun, óþrjótandi sóknarfæri og mikilvægi þess að snúa áföllum landinu í hag að umfjöllunarefni á ársfundi Íslandsstofu þar sem hann hélt opnunarávarp. 

Sendiráð Íslands í Kampala í Úganda afhenti í nýliðinni viku héraðsyfirvöldum í Buikwe-héraði annars vegar nýtt athvarf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og hins vegar fullbúinn grunnskóla. Skólinn er sá fimmtugasti sem byggður er fyrir íslenskt þróunarfé frá því byggðaþróunarverkefni Íslands hófst í héraðinu árið 2015. Nemendafjöldinn í þessum skólum er um helmingur íslenskra barna á grunn- og framhaldsskólaaldri. 

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarbaráttu sinni gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa. 

„Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er alvarlegasta öryggisógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar og skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og landhelgi ríkja", sagði ráðherra í framsögu sinni.

Stuðningur Íslands við varnarbaráttu Úkraínu er af ýmsum toga. Meðal annars felst hann í verklegri þjálfun úkraínskra sjóliðsforingjaefna við Íslandsstrendur í siglingafræði, eftirliti og aðgerðum á hafi, meðal annars leit og björgun. 

„Þetta verkefni er gott dæmi um hvað Ísland getur lagt af mörkum til að styðja við Úkraínu og byggir á okkar sérþekkingu og reynslu við krefjandi aðstæður á Norður-Atlantshafi,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. 

Annað gott dæmi er að árið 2022 veitti Ísland tíu milljón króna styrk til byggingar og útbúnaðar nýs leikskóla í bænum Ovruch, í Zhytomyr héraði Úkraínu. Í þar síðustu viku heimsóttu svo úkraínskir þingmenn, sem aðild eiga að sérstökum vinahópi Íslands í úkraínska þinginu, utanríkisráðuneytið. Funduðu þeir með ráðuneytisstjóra og færðu ráðuneytinu af því tilefni að gjöf myndir gerðar af börnum sem sækja áðurnefndan leikskóla.

Förum næst til Vínarborgar þar sem heilmargt var um að vera í tilefni af alþjóðabaráttudegi kvenna þann 8. mars síðastliðinn. 

Ísland varð á dögunum aðili að Vinahópi fyrir lýðfrjálst Belarús en að honum standa á þriðja tug aðildarríkja ÖSE. Hópurinn er vettvangur til að efla umræðu, skiptast á upplýsingum og þekkingu milli aðildarríkja ÖSE og annarra aðila um stöðu mannréttinda og lýðræðis í Belarús, auk þess að stuðla að því að stjórnvöld í Belarús verði látin sæta ábyrgð á mannréttindabrotum.

Kynjajafnrétti var þema dagana hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York en þar fór fram hinn árlegi Kvennanefndarfundur Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn hefur farið fram á hverju ári frá 1946 og er vel sóttur af forystufólki í kynjajafnrétti um víða veröld. Starfsfólk okkar í fastanefndinni tók að vanda vel á móti sendinefnd Íslands.  

Hér má lesa ræðu Guðmundar Inga Guðbrandssonar félags- og vinnumarkaðsráðherra á fundinum.

Þingið er viðamikill viðburður með heilmörgum hliðarviðburðum. Jörundur Valtýsson fastafulltrúi Íslands tók meðal annars þátt í einum slíkum með konum í Afghanistan.

Á alþjóðabaráttudegi kvenna voru málefni kvenna í Afghanistan líka til umræðu en íslensk stjórnvöld hafa lengi talað fyrir réttindum þeirra.

Á hliðarviðburði á Kvennanefndarfundinum deildi Anna Pála Sverrisdóttir sendiráðunautur með fundargestum leyndardómum jafnréttisbaráttunnar á Íslandi.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra var meðal þeirra sem sóttu fundinn.

Og unga fólkið, sem er jú framtíðin eins og við vitum, fékk líka sviðið.

Vorlota framkvæmdastjórnarfundar UNESCO í París er í fullum gangi og fastanefnd Íslands önnum kafin í tenglum við hana.  Dagskráin er yfirgripsmikil að vanda en til umræðu eru meðal annars ályktanir um neyðaraðstoð til Úkraínu og Gaza, styrkingu á jafnréttisstarfi stofnunarinnar, aðkomu hennar að Summit of the Future, SDG4 um menntamál, aðgengi að menntun á átakasvæðum og aðgerðaáætlun vegna tjáningarfrelsis vísindafólks. Þá situr Ísland einnig í mannréttindanefnd UNESCO og tekur virkan þátt í umræðum á lokuðum hluta nefndarinnar.

Auðbjörg Halldórsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart UNESCO, flutti stefnuræðu við upphaf fundar. Ræðuna má finna hér.

Í París var að vanda heilmargt annað um að vera. Una Jóhannsdóttir sendiráðunautur sótti tónleika þar sem forsetar Frakklans og Litháen voru einnig staddir.

Unnur Orradóttir Ramette sendiherra Íslands í Frakklandi og Eliza Reid forsetafrú voru gestir Telecom Valley.

Sú síðarnefnda kom til Frakklands uppljómuð frá áðurnefndum Kvennanefndarfundi í New York og deildi visku sinni á hátíð sem fór fram í Cannes.

Unnur Orradóttir Ramette sendiherra tók líka á móti Ms. Chaillet-Leforestier, forseta norrænu deilarinnar í hinni virtu menntastofnun Sciences Po til að ræða norræna samvinnu. 

Sendiherra Íslands í Þýskalandi, María Erla Marelsdóttir sótti úrslit reiðkeppni íslenska hestsins í Münster-Handorf þar sem hún ásamt skipuleggendunum afhenti sigurvegurum hinna ýmissa flokka verðlaun. Var þetta fyrsta mótaröð Viking Masters, sem haldin er á fjórum mismunandi stöðum í Þýskalandi yfir vetrarvertíðina frá janúar til mars, að frumkvæði EYJA og Eiðfaxa. 

 

Svo fóru fram fyrir fullum sal í Felleshus, húsnæði norrænu sendiráðanna í Berlín, kynning og umræða um nýtútgefna bók Halldórs Guðmundssonar „Im Schatten des Vulkans“. Staðgengill sendiherra, Ágúst Már Ágústsson bauð gesti velkomna og tók Halldór Guðmundsson sjálfur þátt í líflegum umræðum um tilurð bókarinnar og sögu bókmennta á Íslandi. Halldór tekur síðan ásamt Stefáni Mána þátt í bókamessunni í Leipzig, sem fer fram dagana 21.-24. mars.

Í Brussel stóð Jarl-Frijs Madsen, sendiherra Danmerkur í Hollandi fyrir morgunverðarfundi norrænna sendiherra þar í landi, ásamt Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands. Fundurinn fór fram í Haag og Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands gagnvart Hollandi sótti hann fyrir Íslands hönd.

Í tengslum við 55. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna var haldinn hliðarviðburður með þátttöku Ásmundar Einars Daðasonar Mennta- og barnamálaráðherra í Genf um hið svokallaða Lanzarote samkomulag. Viðburðurinn var unninn í samráði við Evrópuráð barna.

Ásmundur ávarpaði þingið í leiðinni fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og minnti á mikilvægi þess að ekkert barn skyldi undanskilið vernd frá ofbeldi. Rétt er að geta þess að á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf tekur Ísland undir heilmargar ræður, oft í samstarfi við fyrrnefnd lönd.

Það var mikið um að vera í Washington D.C. þegar Taste of Iceland menningarhátíðin var haldin í höfuðborginni þriðja árið í röð. Sendiherra Íslands, Bergdís Ellertsdóttir, opnaði hátíðina formlega. Fjölmargir viðburðir voru á dagskrá, meðal annars bókmenntaviðburður þar sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson töluðu um nýjustu verk sín, hönnunarteymið Flétta Studio og Ýrúrarí útbjuggu pizzur úr ull á sérstökum hönnunarviðburði í embættisbústaðnum og á öðrum viðburði fyrir Washington-búa, landsliðskokkurinn Bjarki Snær Þorsteinsson var með íslenskan matseðil á veitingastaðnum Brasserie Beck og eldfjallafræðingurinn Helga Kristín Torfadóttir hélt fyrirlestur um jarðfræði og eldfjallavirkni á Íslandi. Hátíðinni lauk með tónleikum, Iceland Airwaves Off Venue, þar sem JDFR, Axel Flóvent og GRÓA komu fram. 

Sendiherra Íslands í Bandaríkjunum stillti sér upp með rithöfundunum Yrsu og Ragnari að loknum velheppnuðum bókmenntaviðburði á Taste of Iceland.  

Þá fagnaði hún einnig þjóðhátíðardegi Litháen í Washington ásamt varnamálafulltrúa sendiráðsins, Garðari Forberg.

Og hún lét ekki þar við sitja heldur tók líka þátt í viðburði í Washington í tengslum við útgáfu nýjustu hamingjuskýrslu Gallup. Ísland er samkvæmt skýrslunni þriðja hamingjusamasta þjóð í heimi og deildi sendiherra leyndarmálum sem liggja að baki hamingju Íslendinga. 

Í Helsinki var að vanda heilmargt um að vera á mörgum sviðum, ekki síst í menningunni en gestir og gangandi eru hvött til að sækja sýninguna Experiment Concretism í nýlistasafninu EMMA. Þar gefur að líta verk tveggja Íslendinga sem taka þátt í sýningunni Kristjáns Guðmundssonar og Rögnu Róbertsdóttur.

Orkumálin voru til umræðu á svokallaðri Orkumálaviku í Vaasa. Sendiherra Íslands í Finnlandi, Harald Aspelund ávarpaði þingið og tók þátt í pallborðsumræðum.

Móttökur og ráðstefnur sem sendiherrar sækja eru af ýmsum toga og nýtast allir viðburðir til að styrkja tengslin við yfirvöld annarra ríkja. Einn slíkur viðburður var þátttaka í göngu sem skipulögð var af franska sendiráðinu frá Ólympíuhöllinni í Helsinki að franska sendiráðinu. Mun gangan vera liður í upphitun fyrir Ólympíkuleikana sem fara fram í París í sumar.

Írska sendiráðið í Helsinki hélt móttöku í tilefni af St. Patricks Day. Harald Aspelund sendiherra Íslands í Finnlandi notaði tækifærið til að styrkja tengslin við frændur okkar Íra, sótti móttökuna og átti góða stund með landbúnaðarráðherranum Pippa Hackett.

Harald sótti einnig ráðstefnu um áskoranir lýðræðis í síbreytilegri veröld sem skipulögð var af sendiráði Chile þar í borg.

Harald tók sér líka tíma til að hlæja svolítið með okkar ástkæra uppistandara Ara Eldjárn sem var með viðburð í Helsinki. 

Ljóðabókin Hreistur eftir Bubba Morthens kom út í finnskri þýðingu á dögunum. Starfsfólk sendiráðs okkar í Finnlandi kongratúlerar. 

Sem fyrr segir var alþjóðlegur dagur hamingjunnar haldinn hátíðlegur 20. mars. Sendiráð okkar í Finnlandi birti skemmtilegt myndband þar sem frægir Finnar deila hamingjuráðum. Við mælum með að lagt sé við hlustir því Finnland mælist enn og aftur í fyrsta sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims. 

Dagur Norðurlandanna verður haldinn hátíðlegur þann 23. mars, eins og ár hvert, en fyrir 62 árum var formfest samvinna milli allra Norðurlandanna með Helsinki sáttmálanum. Ýmsir viðburðir og fundir marka tímamótin og við munum fjalla betur um það í næsta föstudagspósti. 

Alþjóðadagur vatns fór fram þann 22. mars. Af því tilefni greindi starfsfólk sendiráðs okkar í Úganda frá verkefnum á sviði vatns- og hreinlætisaðstæðna í samstarfshéruðum okkar í landinu. 

Meðal annars í samvinnu við UNICEF.

Þjóðminjasafn Íslands tók þátt í Historiske Dage i Øksnehallen. Starfsfólk sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn greindi frá. 

 

Í sendiráðið í Kaupmannahöfn kom einnig flottur hópur nemenda úr máladeild Menntaskólans í Reykjavík. Stefanía Kristín Bjarnadóttir og Sigurlína Andrésdóttir kynntu hlutverk utanríkisþjónustunnar og sendiráðsins fyrir hópnum. 

Sendiherra Íslands, í samvinnu við Dansk-islandsk samfund bauð til tónleika í embættisbústaðnum. Hin hæfileikaríka söngkona Karin Thorbjörnsdóttir söng við undirleik Steen Lindholm, formanns Dansk-Islandsk samfund og fluttu þau bæði íslenskar og danskar tónlistarperlur.

Teymi fjölmiðlamanna frá Íslandi heimsótti sendiráð Íslands í Lilongwe og fékk höfðinglegar móttökur starfsfólk sendiráðs okkar þar í landi sem leiddi þau á vettvang ýmissa verkefna sem sendiráðið og íslensk stjórnvöld hafa fjármagnað og komið að í samstarfshéruðum okkar í landinu.

Í fjölmiðlaumfjöllun um fæðingardeild sem var opnuð í Mangochi héraði fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda kom fram að dauði kvenna í fæðingu hefði minnkað um 53% og ungbarnadauði um 32%. Við mælum með að þessi staðreynd sé lesin tvisvar. 

Í tilefni af alþjóðadegi vatns greindi sendiráðsstarfsfólk okkar í Lilongwe frá annarri sturlaðri  staðreynd, en yfir 400.000 manns hafa nú aðgang að hreinu vatni í gegnum verkefni styrkt af íslenskum stjórnvöldum. Það eru fleiri en allir Íslendingar samanlagt.

Starfsfólk sendiráðs Íslands í London óskaði aðstandendum íslensku heimildarmyndarinnar Heimaleikurinn innilega til hamingju með velgengnina en myndin vann áhorfendaverðlaunin á Kvikmyndahátíð Glasgow.

Jóhanna Jónsdóttir, staðgengill sendiherra í London tók á móti Kvennakórnum Ljósbrot undir stjórn Keith Reed í sendiráðinu. Kórinn mun syngja með íslenska kórnum í London í páskamessu safnaðarins í sænsku kirkjunni næstkomandi sunnudag.

Hlynur Guðjónsson sendiherra Íslands í Kanada hitti fulltrúa Alberta fylkis og ræddi við hann um mögulegt samstarf Íslands og Alberta á ýmsum sviðum.

Kvikmyndin Á ferð með mömmu eftir Hilmar Oddsson var sýnd fyrir fullum sal í Ottawa og vakti mikla lukku. Starfsfólk sendiráðs okkar í Kanada var á staðbum  og greindi frá.

Sendiráð Íslands í Osló í samstarfi við Íslandsstofu, Icelandair og Bæjarins Beztu bauð lykilaðilum úr norska ferðaiðnaðinum til Íslandskvölds í embættisbústaðnum.

Sendiherra Íslands í Noregi Högni Kristjánsson og Ásgerður Magnúsdóttir eiginkona hans heimsóttu Þrándheim í síðastliðinni viku.

Meðal þess sem þau gerðu í Þrándheimi var að fylgjast með forkeppni matreiðslumanna í hinni ópinberu heimsmeistarkeppni kokka, Bocuse d’Or þar sem frábær frammistaða íslenska liðsins skilaði þeim áttunda sæti. 

Sendiráð Íslands í París óskaði kvikmyndagerðarkonunni Birnu Ketilsdóttur Schram til hamingju með að hafa hlotið í ár Verðalun Sólveigar Anspach fyrir stuttmynd sína Allt um kring. Myndin tók nýverið þátt í alþjóðlegri stuttmyndahátíð í Clermon-Ferrand í Frakklandi. Þátttakan var studd af sendiráði Íslands í París. 

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í Frakklandi var þátttakandi í podcasti með þann einbeitta og göfuga ásetning að laða franska fjárfesta til Íslands.

Dagana 12. til 15. mars fór stærsta alþjóðlega fjárfestingastefna heims, MIPIM 2024, fram í Cannes í Frakklandi. Unnur Orradóttir Ramette sendiherra tók virkan þátt í ráðstefnunni í samstarfi við Íslandsstofu og flutti meðal ananrs opnunarávarp á sérstöku Íslandssvæði þar sem kynnt voru uppbyggingaráform í landi Keldna í Reykjavík, tækifæri fyrir hringrásariðnað á Grundartanga og Aldin Biodome í Elliðaárdal.

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra, hélt einnig ávarp við frumsýningu heimildarmyndarinnar "Le chant des origines - Le manuscrit grégorien d'Islande" eftir Marie Arnaud og Jacques Debs. Heimildarmyndin fjallar um íslenskt tónlistarhandrit frá miðöldum, tileinkað Þorláki helga og skráð á latínu af íslenskum munkum. Fumsýningin var í samstarfi við sendiráðið. Heimildarmyndin verður sýnd á næstu dögum í franska ríkissjónvarpinu.  

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi auglýsti komu tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta til Svíþjóðar í maí.

Og mælti jafnframt með tónleikum tónlistarkonunnar Stínu Ágústsdóttur sem kemur fram í borginni um þessa helgi.

Japönum býðst að læra íslensku frá miðjum apríl. Starfsfólk sendiráðs okkar í Tókýó vekur athygli á námskeiði DILA málaskólans.

Sendiráð Íslands í Tókýó minntist þess að 13 ár eru liðin frá jarðskjálftanum og flóðbylgjunni 2011 þar sem fjöldi fólks missti heimili sín og margir týndu lífinu.

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra Íslands í Japan heimsótti Kyoto og sótti þar vorsýningu hins 550 ára gamla Ikonobo skóla sem ræðismaður okkar á svæðinu Yuki Ikenobo rekur.

Þá hitti hann einnig sendinefnd sem heldur brátt í leiðangur til Íslands til að læra um kynjajafnrétti hér. 

Sendiráð Íslands í Tókýó stóð enn fremur fyrir fyrirlestri þar sem Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Háskóla Íslands hélt erindi um falsfréttir og þróun fjölmiðla með gestum meðal annars frá stærstu fjölmiðlum Japans.

Hjá sendiráði Íslands í Varsjá var þess minnst að í ár eru 100 ár líðin frá því að viðskiptasamband komst á milli Íslands og Póllands. Af því tilefni kynnir sendiráðið á sínum samfélagsmiðlum íslensk fyrirtæki sem hafa starfsemi í Póllandi.

Sendiráðsstarfsfólk okkar í Póllandi óskaði Pólverjum til hamingju með daginn í tilefni þess að 25 áru eru liðin frá því að Pólland fékk inngöngu í NATO.

Norrænar sögur og goðsagnir lifa góðu lífi í Póllandi. 

Og nú styttist í viðburð sem haldinn verður í samstarfi Varsjársafnsins og Þjóðminjasafns Íslands þar sem áhersla verður á ljósmyndir. Viðburðurinn ber ljóðræna og fallega yfirskrift: "The youth of our age is beautiful. Photo albums 1850-1950" og fer fram frá 8 - 9 apríl. 

Hannes Heimisson sendiherra Íslands í Póllandi fékk tækifæri til að virða fyrir sér eintak af Landnámu í safninu Muzeum Hutnictwa.

Starfsfólk sendiráðs okkar í Varsjá mælir með skýrslu um reynslu Urszula Jabłońska af því að brjóta þögnina um kynferðisofbeldi.

Hannes Heimisson sendiherra hélt fyrirlestur fyrir nemendur í Uniwersytet Śląski w Katowicach.

Í hinu langdregna ferli að Svíþjóð yrði meðlimur Atlantshafsbandalagsins er eitt móment sem allir bíða eftir, það er þegar fáni þjóðar er dreginn að hún við aðalbyggingu bandalagsins. Sú hátíðlega stund átti sér lok stað í síðustu viku og fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu birti af því fallegar myndir.

Þá verður þessi tvöfaldi póstur ekki lengri að sinni. 

Við óskum góðrar helgar og góðrar dymbilviku,

Upplýsingadeild.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum