Hoppa yfir valmynd
12. október 2020 Matvælaráðuneytið

Innanlandsvog 2020-2021

Atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytið gefur nú öðru sinni út innanlandsvog í samræmi við 5. gr. reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019. Hlutverk hennar er að skilgreina þarfir innanlandsmarkaðar og eftirspurn eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað.

Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna 24 mánuði og spá um líklega söluþróun. Innanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé. Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun framleiðsluársins 2020 – 2021 nú fyrir.

Samhliða innanlandsvoginni hefur atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu á hverja vetrarfóðraða kind sl. 3 ár. Með því er einnig hægt að áætla framleiðslu umfram vænta eftirspurn innanlandsmarkaðar á komandi framleiðsluári.

Dilkakjöt

Innanlandsvog fyrir dilkakjöt framleiðsluárið 2020 – 2021 er 7.992 tonn.    
Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta eftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum, þ.e. frampörtum, hryggjum, lærum og slögum.

 Það er eftirspurn eftir hryggjum sem ræður magninu en til þess að fullnægja henni er umframframleiðsla á frampörtum, lærum og slögum, alls 1.799 tonn.  

Áætluð heildarframleiðsla á dilkakjöti er aðeins lítillega umfram innanlandsvogina, 8.006 tonn og miðað við hana er framleiðsla umfram innanlandsmarkað alls 1.813 tonn.

Innanlandsvog 2020
Dilkakjöt Tonn
Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands 7.992
Áætluð heildarframleiðsla 8.006
Framleiðsla umfram innanlandsmarkað 1.813

Kjöt af fullorðnu

Innanlandsvog fyrir kjöt af fullorðnu fé framleiðsluárið 2020 – 2021 er 1.009 tonn.  
Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta innanlandseftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum. Eftirspurn eftir hryggjum ræður framleiðsluþörfinni fyrir innanlandsmarkað.
Spá um heildarframleiðslu er 1.293 tonn. Framleiðsla umfram vænta eftirspurn á innanlandsmarkaði er 580 tonn. Þar af er miðað við 297 tonna framleiðslu umfram eftirspurn á frampörtum, lærum og slögum og 283 tonn á heilum skrokkum.

Innanlandsvog 2020
Fullorðið fé Tonn
Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands 1.009
Áætluð heildarframleiðsla 1.293
Framleiðsla umfram innanlandsmarkað 580
 
 
   
   
   
   

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum