Hoppa yfir valmynd
16. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 302/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. september 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 302/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20070020

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. júlí 2020 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. júlí 2020, um að synja honum um ótímabundið dvalarleyfi.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi fyrir flóttamann þann 7. mars 2016 með gildistíma til 7. mars 2020. Kærandi sótti um ótímabundið dvalarleyfi þann 6. desember 2019. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. júlí 2020, var umsókninni synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 21. júlí sl. en kæru fylgdu athugasemdir kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar voru skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis rakin, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Meðal skilyrða væri að útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. laganna. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. júní sl., ætti kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þar sem kærandi uppfyllti ekki fyrrnefnt skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga var umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til þess að hann sé búinn að vera með skilorðsbundið mál til meðferðar hjá lögreglu síðan í ágúst 2019. Hann hafi haft samband við lögreglu vegna málsins og honum verið tilkynnt að verið væri að bíða eftir tveimur skýrslum til þess að loka málinu en það yrði ekki fyrr en um miðjan ágúst.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins leyfis síðan 7. mars 2016.

Frekari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. ágúst 2020, á kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis og er hin kærða ákvörðun því staðfest.

Kærunefnd ítrekar leiðbeiningar Útlendingastofnunar um að leggja fram umsókn um endurnýjun dvalarleyfis innan 15 daga frá móttöku úrskurðarins.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Hilmar Magnússon                                                                 Gunnar Páll Baldvinsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum