Hoppa yfir valmynd
8. desember 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 508/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 8. desember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 508/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100010

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. september 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. september 2022, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. apríl 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 23. ágúst 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 16. september 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 30. september 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 14. október 2022. Viðbótargögn bárust kærunefnd 21. nóvember 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ótta við glæpahópa, bágs efnahagsástands og almenns ástands í heimaríki.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað í frásögn kæranda um að hann hafi lagt á flótta frá heimaríki sínu vegna ofbeldis gagnvart honum og fjölskyldu hans. Hann haft greint frá því að hafa sætt stöðugum hótunum vegna starfa sinna sem samskiptastjóri fyrir frjáls félagasamtök sem aðstoði eiturlyfjaneytendur og heimilislaust fólk. Kærandi óttist eiturlyfjasala og glæpagengið Bacrim. Hann óttist að vera beittur ofbeldi og sé hræddur um líf sitt og fjölskyldu sinnar í heimaríki.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi, samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að landaupplýsingar um ástandið í Kólumbíu sem fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar styðji að öllu leyti frásögn hans um ástæður þess að hann hafi flúið. Jafnframt sýni framlögð gögn kæranda þær hættur sem fylgi því að sinna starfi hans í Kólumbíu. Þá mótmælir kærandi því mati Útlendingastofnunar að hann hafi ekki sýnt fram á að kólumbísk stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd gagnvart þeirri hættu sem hann búi við, sérstaklega í ljósi þess að í ákvörðuninni sé vitnað í heimildir þar sem fram komi að vald lögreglu geti verið veikt vegna skorts á mannskap og spillingar innan lögreglunnar. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi lagt of mikla sönnunarbyrði á sig og vísar hann í því samhengi til niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 149/2020 þar sem fram komi m.a. að við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi fært fram nægar sönnur beri jafnframt að hafa í huga að sönnunarkröfur mega ekki vera svo ríkar að viðkomandi njóti ekki raunhæfrar verndar gegn alvarlegum mannréttindabrotum.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Stjórnvöld í Kólumbíu geti ekki tryggt öryggi borgara sinna, aðgengi þeirra að mat, drykkjarvatni, heilbrigðis- og félagsþjónustu eða aðgengi barna að menntakerfinu. Því telji kærandi ljóst að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að aðstæður hans nái ákveðnu alvarleikastigi og að þegar málið sé virt í heild uppfylli hann skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Vísar kærandi til athugasemda með ákvæðinu máli sínu til stuðnings. Erfitt sé að hrekja upplifun kæranda af ótta hans um öryggi sitt og öryggi fjölskyldu sinnar í tengslum við aðfarir og/eða aðgerðarleysi yfirvalda. Einnig þurfi að hafa í huga að kærandi og eiginkona hans hafi bæði orðið fyrir árásum og ránum. Ólíklegt sé að ástandið í Kólumbíu batni á næstunni og ekki sé ástæða til að ætla að kæranda stafi ekki lengur hætta af ofsækjendum sínum. Til að tryggja öryggi kæranda og allrar fjölskyldu hans ætti að veita honum dvalarleyfi hér á landi og tryggja að hann geti sameinast fjölskyldu sinni þannig að öll fjölskyldan geti byggt upp það líf sem hún hafi alltaf óskað sér hér á landi. Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/2022 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Colombia and ELN rebels agree to restart peace talks (https://www.aljazeera.com/news/2022/10/4/colombia-and-eln-rebels-agree-to-restart-peace-talks-next-month, 4. október 2022);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, síðast uppfært 28. júní 2022);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia: Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);  
  • Colombia: Risk update (ACAPS, 8. mars 2022);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 4. október 2022);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia‘s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia: Requirements and procedures to submit a complaint to the police, the Fiscalía General de la Nación, and the Defensoría del Pueblo, including types of complaints; standardization and appearance of documents; requirements and procedures to obtain a copy of the complaint and investigative report for each organization, both from within the country and from abroad (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. maí 2017);
  • Country Reports on Terrorism 2020 – Colombia (US State Department, 16. desember 2021);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 22. júní 2022);

  • Freedom in the World 2022 – Colombia (Freedom House, 3. febrúar 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • Los Focos Del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • Stjórnarskrá Kólumbíu (Presidencia De La Republica, 1991)
  • The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 29. nóvember 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 - Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 15. janúar 2022); 
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Hinn 20. júní 2022 var Gustavo Petro kjörinn forseti Kólumbíu. Petro er fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir benda til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hét hann því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi innleitt lög um að glæpavæða opinbera spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.

Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2021 kemur fram að almennir borgarar hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliða- og glæpahópa. Þrátt fyrir ofangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi framlengt umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Þá hafi stjórnlagadómstóllinn framlengt umboð sannleiks- og sáttanefndarinnar til 27. júní 2022.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim var slitið árið 2018.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2021 kemur fram að kólumbíska ríkislögreglan hafi í nóvember árið 2021 ráðist að mótmælendum í landinu, sem hafi mótmælt breytingum á skattalöggjöf og morðum á mannréttindaaðgerðarsinnum. Dregið hafi úr mótmælum í kjölfar Covid-19 faraldursins en hinn 28. apríl 2021 hafi þúsundir manna tekið þátt í mótmælum vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalöggjöf. Stjórnvöld hafi dregið umræddar tillögur til baka en mótmæli hafi haldið áfram og tengst óánægju mótmælenda á mörgum sviðum, s.s. atvinnuleysi, versnandi efnahagsástandi í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, ójöfnuði, glæpatíðni o.fl. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafi fordæmt alvarleg ofbeldisbrot í landinu. Í skýrslu samtakanna Freedom House frá 2022 kemur fram að mannréttindabrot af hendi lögreglunnar í mótmælum árið 2021 hafi leitt til kerfisbreytinga og í desember 2021 hafi þingið samþykkt umbótapakka (e. reform package) til að styrkja agaviðurlög vegna brota lögreglumanna í starfi. Í skýrslunni kemur fram að lögregluyfirvöld og ríkissaksóknari hafi hafið rannsókn á öllum ásökunum um ofbeldi lögreglu og óhóflegri valdbeitingu.

Í framangreindri skýrslu Freedom House kemur fram að friðarsamkomulagið sem undirritað var árið 2016 milli ríkisstjórnarinnar og FARC skæruliðahópsins hafi haldist óbreytt á árinu. En tafir á framkvæmd samkomulagsins og afvopnun fyrrverandi uppreisnarmanna hafi vakið áhyggjur eftirlitsaðila. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett var á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 14,3% árið 2021 og hefur aukist verulega frá árinu 2019 en minnkað frá árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefnd Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofbeldis og hótana sem rekja megi til starfa hans sem samskiptastjóri fyrir frjáls félagasamtök sem aðstoði eiturlyfjaneytendur og heimilislaust fólk. Kærandi óttist eiturlyfjasala og glæpagengið Bacrim. Hann óttist að vera beittur ofbeldi og sé hræddur um líf sitt og fjölskyldu sinnar í heimaríki.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Hinn 17. nóvember 2022 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum um aðstæður kæranda í heimaríki hans, m.a. um störf hans þar. Í svari kæranda, dags. 21. nóvember 2022, kom m.a. fram að hann hafi rekið pítsustaðinn […]. Jafnframt hafi hann verið sjálfboðaliði hjá félagasamtökunum Compania de Ayudas, sem m.a. aðstoði heimilislaust fólk og fíkniefnaneytendur, þar sem hann hafi stýrt móttöku framlaga frá stuðningsaðilum, verið í samskiptum við neytendur þjónustunnar, afhent þeim matargjafir og veitt ráðgjöf og stuðning við að hætta í neyslu þegar vilji hafi verið fyrir hendi til þess. Kærandi hafi verið einn af stofnendum samtakanna og hafi starfað fyrir þau í um tólf ár. Kæranda hafi borist hótanir daglega í um þrjú ár, bæði í eigin persónu og með bæklingum sem í a.m.k. eitt skipti hafi innihaldið byssukúlu sem viðvörun. Meðstofnandi kæranda hafi einnig flúið vegna hótana og hætt öllum afskiptum af starfi samtakanna. Aðrir sjálfboðaliðar hafi jafnframt tilkynnt að þeim hafi borist hótanir. Máli sínu til stuðnings lagði kærandi fram ljósmyndir af meintum bæklingum, auk myndbands þar sem hann sést gefa matargjafir til heimilislausra einstaklinga í Kólumbíu.

Kærandi greindi frá því að hafa leitað til lögreglu í Kólumbíu vegna hótananna en að lögreglan hafi ekki viljað aðstoða hann. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leggja grunn að staðhæfingum hans um að þar til bær yfirvöld í heimaríki hafi ekki tekið kvörtun hans til skoðunar, fellt niður rannsókn á máli hans eða gögn sem á annan hátt sýna fram á að yfirvöld hafi ekki vilja til eða muni ekki aðhafast frekar í málinu. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 12. apríl 2021, kemur fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann geti ekki leitað aðstoðar lögreglu telji hann þörf á því. Samkvæmt upplýsingum í viðtali við kæranda var hann búsettur í Bógóta í Kólumbíu. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum þar í landi, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í Bógóta í Kólumbíu að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda.  

Kærandi hefur greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kæranda. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé vinnufær og fær um að framfleyta sér í heimaríki. Kærandi greindi jafnframt frá því að eiginkona hans væri útivinnandi og að hún sæi þannig um að framfleyta börnum þeirra í heimaríki. 

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Kærandi byggir á því að stjórnvöld í Kólumbíu geti ekki tryggt öryggi borgara sinna, aðgengi þeirra að mat, drykkjarvatni, heilbrigðis- og félagsþjónustu eða aðgengi barna að menntakerfi.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunna að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra þó góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld í landinu að öllu jöfnu öflug og fagleg. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið á mörgum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að það sé bæði raunhæft og sanngjarnt að kærandi geti sest að í Kólumbíu þar sem stjórnvöld fari með stjórnartaumana, t.a.m. í Bógóta þar sem hann kveðst hafa haft búsetu. Er það jafnframt mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa til Kólumbíu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi byggir á því að hann óttist um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar í heimaríki sínu. Ólíklegt sé að ástandið í Kólumbíu batni á næstunni og ekki sé ástæða til að ætla að kæranda stafi ekki lengur hætta af ofsækjendum sínum. Þá hefur kærandi greint frá því að hann sjái fram á erfiðar félagslegar aðstæður verði honum gert að fara aftur til heimaríki síns.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur m.a. fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að almennar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Eins og fram hefur komið rak kærandi veitingastað á tímabili og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér í heimaríki sínu. Jafnframt kveður kærandi eiginkonu sína vera útivinnandi og að hún framfleyti börnum þeirra í heimaríki. Þá hefur ekki komið annað fram í viðtölum við kæranda en að hann sé við góða heilsu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað eiga ríkisborgarar Kólumbíu rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá kemur fram í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji Útlendingastofnun hafa lagt of mikla sönnunarbyrði á sig og vísar hann í því samhengi til niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 149/2020 þar sem fram komi m.a. að við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi fært fram nægar sönnur í málinu beri jafnframt að hafa í huga að sönnunarkröfur mega ekki vera svo ríkar að viðkomandi njóti ekki raunhæfrar verndar gegn alvarlegum mannréttindabrotum. Fram komi að þótt það standi umsækjanda sjálfum nær að afla gagna um persónulegar aðstæður sínar standi það ríkinu nær að afla gagna um aðstæður í heimaríki hans, þar með talið um að yfirvöld þar geti veitt honum fullnægjandi vernd.

Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Fram kemur í landaupplýsingaskýrslum um aðstæður í Kólumbíu, sem bæði Útlendingastofnun og kærunefnd hafa stuðst við, að þrátt fyrir skort á fjármagni og mannafla séu lögregluyfirvöld í Kólumbíu alla jafna öflug og fagleg. Þá hefur kærandi, líkt og áður greinir, ekki lagt fram gögn sem renna stoðum undir frásögn hans um hann hafi leitað aðstoðar lögreglu eða gögn sem á annan hátt sýna fram á að yfirvöld hafi ekki vilja til eða muni ekki aðhafast í málinu.

Kærunefnd telur hvorki óeðlilegt né ósanngjarnt að gera almennt þá kröfu til umsækjenda um alþjóðlega vernd, líkt og í tilviki kæranda, að þeir leggi fram gögn sem sýni fram á að þeir hafi leitað til lögreglu, s.s. kæruskýrslur eða lögregluskýrslur. Verður því ekki fallist á það með kæranda að Útlendingastofnun hafi lagt of mikla sönnunarbyrði á hann. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti máls kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun og er það mat kærunefndar að ekki hafi verið annmarkar á málsmeðferð máls kæranda hjá stofnuninni sem valdið geti ógildingu hennar.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 27. apríl 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir


 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum