Hoppa yfir valmynd
20. apríl 2022 Innviðaráðuneytið

120 milljónum úthlutað til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að fjárhæð 120 milljónum kr. til átta verkefna á vegum þriggja landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 (aðgerð C.1). Alls bárust 24 umsóknir um styrki að fjárhæð tæpar 816 m.kr. fyrir árin 2022-2026. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra um úthlutun. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna. Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Undirbúningur og forsendugreining hitaveitu í Árneshreppi. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk að fjárhæð 5.625.000 kr. á árinu 2022 til að undirbúa lagningu hitaveitu í Árneshreppi. Verkefnið felur í sér greiningu forsenda, hönnun, gerð fjárhagsáætlunar, samningagerð og stofnun rekstrarfélags. 
  • Gróðurhús í Öxarfirði. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, fá styrk að fjárhæð 1.500.000 kr. á árinu 2022, en þetta er framhaldsverkefni. Ráða á verkefnisstjóra með aðsetur á Kópaskeri. Verkefnið snýst um nýtingu auðlinda í Öxarfirði, með jarðhita í sandinum og nýtingu hans fyrir gróðurhús.
  • Jarðhitarannsóknir við Gálmaströnd. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk að fjárhæð 17.000.000 kr. á árinu 2022 til undirbúnings og grunnrannsókna vegna uppbyggingar nýrra atvinnutækifæra í Strandabyggð. Ljúka jarðhitarannsóknum og undirbúa vinnsluholu við Gálmaströnd í Steingrímsfirði.
  • Grænir iðngarðar á Reykhólum. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk að fjárhæð 25.000.000 kr. árin 2022-2023. Hugmyndin með grænum iðngörðum er að auka aðdráttarafl svæðisins til fjárfestinga og nýsköpunar og auka þannig fjölbreytni í atvinnulífi og nýtingu á auðlindum svæðisins. Þörungamiðstöð Íslands verður kjarninn.
  • Orkusparnaður á Bakkafirði. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra fá styrk að fjárhæð 10.000.000 kr. fyrir árið 2022. Bakkafjörður er á köldu svæði og húshitunarkostnaður hár. Markmið þessa verkefnis er að útvega hitun fyrir Hafnartangann og aðliggjandi svæði, en þar má finna alla þjónustu Bakkafjarðar við heimamenn og gesti.
  • Áfram Hrísey. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra fá styrk að fjárhæð 10.000.000 kr. árin 2022-2023. Markaðssetja á Hrísey sem vænlegan búsetukost. Ráðinn verður verkefnisstjóri í því skyni.
  • Aðgerðaáætlun um sjálfbæra lýðfræðilega þróun miðsvæðisins. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga fá styrk að fjárhæð 13.200.000 kr. fyrir árið 2022. Verkefnið er fjórþætt. Vinna á rannsókn og greiningu meðal íbúa af erlendum uppruna, vinna að gerð móttökuáætlana á svæðinu fyrir nýja íbúa, gera markaðsgreiningu og markaðssetningu með áherslu á að laða að fjölskyldufólk og gera verkefnaáætlun um aðrar aðgerðir sem styðja við markmið verkefnisins.
  • Nýsköpunar- og þróunarverkefni í öldrunarþjónustu í Fjallabyggð. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra fá styrk að fjárhæð 37.675.000 kr. árin 2022-2024. Með verkefninu er stefnt að því að Fjallabyggð verði nýsköpunar- og þróunarsamfélag á sviði þjónustu við eldra fólk. Markmiðið er að endurmeta uppbyggingu, hugmyndafræði, áherslur, vinnulag, tækni og samhæfingu í velferðarþjónustu hjá sveitarfélaginu.

Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Skipun valnefndar og mat umsókna eru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á  framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Alls hefur 593 m.kr. verið ráðstafað til verkefna á aðgerð C.1 fyrir árin 2018-2024 en markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur eru meðal þess sem lagt er til grundvallar við mat á umsóknum í tíu matsþáttum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum