Hoppa yfir valmynd
17. maí 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Forgangsverkefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins kynnt fyrir fullum sal í Grósku

Forgangsverkefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins kynnt fyrir fullum sal í Grósku - myndLjósmynd: Cat Gundry-Beck

Hátt í 500 manns fylgdust með kynningu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á nýju ráðuneyti í fullum sal í Grósku og í gegnum streymi í gær.

Kynningin var liður í þéttskipaðri og spennandi dagskrá Nýsköpunarvikunnar en í nýju ráðuneyti er unnið með nýja sýn og nýtt verklag. Við breytingarnar var litið til reynslu og fyrirmynda hjá framúrskarandi alþjóðlegum fyrirtækjum sem skara fram úr í nýsköpun.

,,Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að fjölga stoðum samfélagsins til að tryggja að við getum áfram búið við ein bestu lífskjör í heimi. Það þarf að styðja frekar við og efla mikilvægustu auðlind okkar Íslendinga, hugvitið. Hugvitið getur orðið stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Ekki bara að hugvitið verði sérstök stoð í atvinnulífinu heldur einnig stækkar hún og styrkir okkar hefðbundnu atvinnugreinar.“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í kynningunni. 

Breytingarnar í ráðuneytinu fela það m.a. í sér að í stað þess að hafa háskóla, iðnað, fjarskipti og nýsköpun á afmörkuðum skrifstofum eru málaflokkar leiddir saman og ráðuneytinu skipt upp í tvær skrifstofur. Annars vegar skrifstofu sem fer með stjórnsýsluna, fjármálin og dagleg samskipti við undirstofnanir og hins vegar skrifstofu sem fer með um framtíðarsýn og stefnumörkun. Yfirbygging er minnkuð með það að markmiði að koma í veg fyrir að daglegt amstur og ýmis konar uppákomur trufli stór og mikilvæg mál. Nýtt verklag er innleitt með teymisvinnu og lotum.

Nokkur forgangsverkefni ráðherra hafa þegar verið sett í farveg. Má þar nefna:

  • Eflingu stuðningskerfis nýsköpunar.
  • Nýja nálgun í fjármögnun háskólanna.
  • Fjölgun útskrifaðra nemenda úr STEAM greinum (vísindi, tækni, verkfræði, listsköpun og stærðfræði).
  • Greiða leið fyrir erlenda sérfræðinga að koma til landsins.
  • Störf án staðsetningar; háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið er fyrsta ríkisstofnunin sem gefur það skýrt út að flest auglýst störf verði hægt að sinna óháð staðsetningu.
  • Gígabita nettengingu yfir ljósleiðara og/eða fullburða 5G um allt land, engin heimili eða vinnustaðir verða skilin út undan. Ísland verði fyrsta gígabita land heims.
  • Aðgerðaráætlun um netöryggi.
  • Áherslu á innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu.

Upptaka af kynningunni

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum