Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2025 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 19/2025 Úrskurður 20. febrúar 2025

Mál nr. 19/2025                    Aðlögun kenninafns: Evgeníus

Hinn 20. febrúar 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 19/2025.  

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 12. febrúar 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að börnin þeirra, XY og YX, verði kennnd við föður sinn, Evgenii, en nafn hans aðlagað að íslensku máli, Evgeníus.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Evgeníusdóttir og Evgeníusson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta