Hoppa yfir valmynd
4. september 2012 Utanríkisráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum vegna verkefna í þróunarsamvinnu eða mannúðaraðstoð

Frestur mannúðarsamtaka til að skila inn umsóknum vegna verkefna í þróunarsamvinnu eða mannúðaraðstoð er til 15. september nk. Um er að ræða seinni úthlutun ársins 2012.

Sérstakar verklagsreglur utanríkisráðuneytisins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands kveða á um skilyrði fyrir styrkveitingum. Reglurnar hafa verið endurskoðaðar og verða kynntar á fundi í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 6. september kl. 15:00.

Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum