Hoppa yfir valmynd
20. júní 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ný skýrsla OECD um íslenskt efnahagslíf: Íslenska hagkerfið sýnir styrk en auka þarf aðhald fjármálastefnunnar

Mathias Cormann kynnti niðurstöður skýrslu OECD um Ísland á blaðamannafundi. - myndMynd/Eyþór

Staða efnahagsmála á Íslandi er góð og efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldursins hafa að mestu gengið til baka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Auk venjubundinnar umfjöllunar um íslensk efnahagsmál var að þessu sinni fjallað sérstaklega um efnahagslegar áskoranir og tækifæri vegna fjölgunar innflytjenda á Íslandi. OECD telur mikilvægt að leggja áherslu á tvennt til að styðja við aðlögun innflytjenda - annars vegar íslenskukennslu og hins vegar húsnæðismál. Í megindráttum telur OECD að íslenska hagkerfið sýni styrk. Fjármálastefna hafi fylgt þeim áætlunum sem lagt var upp með þegar síðasta skýrsla kom út árið 2021. Verðbólga sé þó þrálát og styrkja megi aðhald stefnunnar og styðja þannig enn betur við peningastefnu.

Samantekt á áherslum og tilmælum OECD í skýrslunni

Hagkerfið sýnir styrk en verðbólgan er þrálát og því þarf að:

  • Auka aðhald í opinberum fjármálum.
  • Auka aðhald peningastefnunnar enn frekar.
  • Afnema skattaundanþágur ferðaþjónustu og færa hana í almenna
    virðisaukaskattsþrepið.
  • Afnema eða takmarka enn frekar almennar heimildir til að nýta séreignarsparnað
    skattfrjálst til greiðslu húsnæðislána.
  • Taka upp þráðinn með endurmat útgjalda og byggja á reynslu tilraunaverkefnanna.
  • Tengja eftirlaunaaldur breyttum lífslíkum. Efla heimaþjónustu og
    -hjúkrun.

Umbótum í samkeppnisumgjörð er fagnað en hvatt er til:

  • Umbóta á vinnumarkaði með því að tengja laun og framleiðni betur.
  • Frekari breytinga á raforkumarkaði. Sett verði upp gagnsæ raforkuheildsala
  • Að umbætur sem gerðar voru á gjaldþrotaumgjörðinni á tímum COVID verði
    varanlegar.
  • Fjárfesta í menntun, sérstaklega þar sem eftirspurn er mikil, svo sem í heilbrigðis-,
    verk- og raunvísindum.

Loftlagsstefnan er metnaðarfull en losun er mikil hér á landi í alþjóðlegum samanburði og því ætti að:

  • Efla loftlagsstefnuna frekar og ná markmiðum hennar á hagkvæman og sjálfbæran hátt.
  • Breikka stofn kolefnisskatts til allra greina sem ekki falla undir ETS-kerfið og láta þá ná
    til allra gróðurhúsalofttegunda.
  • Hækka skattinn smám saman til jafns við ETS kostnað (sem er nú nærri þrefaldur á við
    kolefnisskatt).
  • Lágmarka kostnaðarsamar aðgerðir og nýta kostnaðar- og ábatagreiningu til að auka hagkvæmni.

Til að takast á við áskoranir í innflytjendamálum og hámarka ávinninginn ætti að:

  • Halda áfram að einfalda ferla við útgáfu atvinnuleyfa fyrir erlenda sérfræðinga og
    hraða innleiðingu á framlengingu á dvalar- og atvinnuleyfum.
  • Taka upp skólagjöld í íslenskum háskólum fyrir stúdenta sem koma frá löndum utan EES-
    svæðisins.
  • Leggja meiri áherslu á menntun og aðgengi að félagslegu og hagkvæmu húsnæði í
    aðlögun innflytjenda.
  • Efla tungumálakennslu innflytjenda, ekki síst þeirra fullorðnu, tengja hana starfsþjálfun
    og gera hana aðgengilegri
  •  Styrkja ferla við að meta menntun og þekkingu.
  •  Koma á fót menntabrú til að aðstoða innflytjendur að ljúka fullgildingu erlendrar
    menntunar.
  •  Beina húsnæðisstuðningi í meira mæli að lágtekjuheimilum og stuðla að uppbyggingu félagslegs
    og hagkvæms húnæðis í takt við þarfir.
  •  Setja markmið um hlutdeild innflytjenda í opinberum störfum eða nýráðningum á
    opinberum markaði. Samhliða þarf að þróa matskerfi til að meta árangur slíkarar stefnu.
  •  Aðlaga aðgerðir menntastefnu 2030 fyrir nemendur með erlent móðurmál.
  •  Efla starfsnám og auka aðgengi að því. Halda nemum í starfsnámi sem eru í hættu á að
    falla úr námi.
  • Bjarni Benediktsson og Mathias Cormann. - mynd
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson við kynningu skýrslunnar  - mynd
  • Bjarni Benediktsson - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum