Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 48/2019 - ​Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 48/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120014

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. desember 2018 kærði [...], fd. [...] , ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta sinn þann 18. janúar 2016. Þann 8. apríl 2016 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Þann 3. nóvember 2016 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Ítalíu þann 2. febrúar 2017. Kærandi lagði öðru sinni fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. september 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í gagnagrunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Í kjölfarið var ítölskum stjórnvöldum send beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda þar í landi, sbr. 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari ítalskra stjórnvalda kom fram að kæranda hafi verið veitt dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar með gildistíma til 28. nóvember 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 5. nóvember 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 28. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 4. desember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 7. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 18. desember 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnuna

rÍ ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni vísar kærandi til endurrits af viðtali hans hjá Útlendingastofnun þann 5. nóvember 2018. Þar komi fram að aðstæður kæranda hafi ekki breyst að öðru leyti en því að ástandið á Ítalíu í heild sinni hafi versnað til mikilla muna samanborið við fyrri dvöl hans. Hafi kærandi dvalið í húsnæði með umsækjendum um alþjóðlega vernd á Ítalíu en á næturnar hafi lögreglan birst, barið þau og rekið þau í burtu. Hafi þau því þurft að hafast við á götunni. Þegar kærandi hafi verið sendur til baka til Ítalíu frá Íslandi hafi lögreglan þar tjáð honum að hann þyrfti að sjá um sig sjálfur enda hafi hann notið aðstoðar í sex mánuði þar eftir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd og væri því ekki unnt að veita honum frekari aðstoð. Kveði kærandi að enga atvinnu sé að hafa á Ítalíu og þá hafi hann ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu þar sem hann hafi ekki haft skráð heimilisfang líkt og krafa sé gerð um. Þá hafi hann verið barinn í tvo daga á lögreglustöð á Ítalíu eftir að hafa mótmælt bágri stöðu flóttamanna og framkomu gagnvart þeim. Kveði kærandi að andleg líðan hans hafi versnað eftir að hann hafi verið sendur aftur til Ítalíu og þunglyndi hans hafi aukist. Þunglyndi hans sé það mikið að hann þjáist af sjálfsvígshugsunum.

Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og gerir alvarlegar athugasemdir við að Útlendingastofnun meti hann ekki í slíkri stöðu. Kærandi vísi til þess að samkvæmt gögnum frá sálfræðingi sé hann greindur með [...] og því ljóst að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þurfi tillit til við málsmeðferð. Þá kveði kærandi sig þjást af sjálfsvígshugsunum, svefnleysi og þunglyndi og fari líðan hans versnandi. Vísi kærandi í þessu sambandi til ákvörðunar Útlendingastofnunar þar sem aðili sem glímt hafi við sambærilegar raskanir hafi verið metinn í viðkvæmri stöðu. Telji kærandi að Útlendingastofnun hafi brotið gegn jafnræðisreglu og rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar við meðferð málsins hjá stofnuninni. Kærandi fari þess á leit að kærunefndin bæti úr ágöllum hinnar kærðu ákvörðunar og geri Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Kærandi gerir einnig athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar auk umfjöllunar stofnunarinnar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu á Ítalíu, en í hinni kærðu ákvörðun sé lagt til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi. Þá komi fram í hinni kærðu ákvörðun að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings fullyrðingum sínum. Telji kærandi fráleitt að ganga út frá því sem vísu að frjáls félagasamtök muni aðstoða kæranda með því að útvega honum lögheimili, þar sem slík aðstoð sé sjálfboðin og tilfallandi en ekki tryggð. Sé afar ólíklegt að frjáls félagasamtök geti skráð alla þá einstaklinga sem heimilislausir séu með lögheimili hjá sér auk þess sem gera verði ráð fyrir því að ítölsk stjórnvöld muni fyrr eða síðar koma í veg fyrir slíka málamyndagerninga. Telur kærandi ómálefnalegt af hálfu Útlendingastofnunar að efast um þann framburð kæranda að honum muni reynast erfitt, ef ekki ómögulegt, að sækja sér þá heilbrigðisaðstoð sem honum sé nauðsynleg á Ítalíu.

Í greinargerð kæranda kemur fram að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017, með síðari breytingum, í tengslum við túlkun ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þar komi fram að þau viðmið sem sett séu fram í greininni séu nefnd í dæmaskyni og sé því ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Stofnuninni hafi því borið að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda en ekki einungis horfa til afmarkaðra og þröngra skilyrða reglugerðarinnar.

Kærandi byggir kröfu sína annars vegar á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá erfiðum aðstæðum sínum á Ítalíu. Hann hafi ekki fengið neinn stuðning frá ítölskum stjórnvöldum, hvorki fjárhagslega né félagslega aðstoð, orðið fyrir fordómum og átt erfitt með að finna sér húsnæði og atvinnu.

Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi til ummæla í frumvarpi til laga nr. 81/2017 þar sem fram komi sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá vísi kærandi einnig til túlkunar kærunefndar á þeim ummælum. Telji kærandi engum vafa undirorpið að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu og eðli málsins samkvæmt muni viðkvæm staða hans valda því að hann muni eiga erfitt uppdráttar á Ítalíu verði hann sendur þangað. Kærandi vísi í þessu sambandi enn fremur til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017, frá 10. október 2017, og nr. 583/2017 og nr. 586/2017, frá 24. október 2017. en með úrskurðunum hafi nefndin lagt fyrir Útlendingastofnun að taka umrædd mál til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna. Telji kærandi, í ljósi almennra aðstæðna og aðbúnaðar flóttafólks á Ítalíu, einstaklingsbundinnar stöðu kæranda m.a. vegna andlegrar vanheilsu hans, að hægt sé að jafna mál við fyrrgreinda úrskurði kærunefndar.

Kveður kærandi að hann hafi átt mjög erfitt uppdráttar á Ítalíu, m.a. vegna þeirrar kerfislægu mismunun sem þar þrífist gagnvart flóttafólki, [...]. Þá sé kærandi algjörlega háður ítölskum stjórnvöldum, hann fái ekki aðstoð við atvinnuleit eða húsnæðisleit og þá veiti þau honum engan fjárhagsstuðning. Þá þurfi kærandi á geðheilbrigðisþjónustu að halda sem erfitt sé fyrir flóttamenn að sækja sér. Telji kærandi að staða kæranda sé verulega síðri en staða almennings á Ítalíu og að endursending muni hafa slæmar afleiðingar í för með sér fyrir hann. Með vísan til fyrri reynslu kæranda og andlegra kvilla hans megi vera ljóst að kærandi verði fyrir alvarlegri mismunum á Ítalíu vegna stöðu sinnar, sbr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017.

Kærandi byggir kröfu sína hins vegar á því að endursending hans til Ítalíu muni fela í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement sem lögfest er í 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ljóst sé að vilji löggjafans sé að stjórnvöld skuli skoða gaumgæfilega þær aðstæður sem umsækjendur um alþjóðlega vernd standi frammi fyrir við endursendingu. Kærandi telji að aðstæður hans á Ítalíu t.a.m. varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu, séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 28. nóvember 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára og barnlaus karlmaður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvað kærandi m.a. að líðan hans hafi versnað og þunglyndi hans aukist eftir að fyrri umsókn hans um alþjóðlega vernd hafi verið hafnað hér á landi og hann sendur aftur til Ítalíu. Þá kvaðst hann glíma við sjálfsvígshugsanir. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. [...], kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður karlmaður en hafi glímt við svefnvandamál. Þá hafi kærandi greint frá því að honum hafi verið [...]. Þá kemur einnig fram í heilsufarsgögnum að kærandi hafi hitt sálfræðing í tvígang [...].

Þrátt fyrir að framburður kæranda og framangreind gögn beri með sér að kærandi glími við tiltekna andlega erfiðleika er það mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018),
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 21. mars 2018),
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017),
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018),
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),
  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Medical Care, Screening and Regularization of Sub-Saharan Irregular Migrants Affected by Hepatitis B in France and Italy (Journal of Immigrant and Minority Health, júní 2018),
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy),
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (Consiglio Italiano per I Rifugiati – http://www.cir-onlus.org/en/),
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þar er m.a. greint frá vanköntum á aðlögun einstaklinga með alþjóðlega vernd að ítölsku samfélagi. Í framangreindum gögnum kemur einnig fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga ekki rétt á þeim stuðningi sem umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veittur enda sé gert ráð fyrir því að einstaklingar sjái fyrir sér sjálfir eftir að hafa verið veitt alþjóðleg vernd. Þegar einstaklingi með alþjóðlega vernd sé vísað aftur til Ítalíu eigi hann rétt á því að gista í svokölluðum SPRAR móttökumiðstöðvum, að því gefnu að viðkomandi hafi ekki fullnýtt heimild til dvalar þar og að laust pláss sé til staðar. Þó kemur fram að takmarkað framboð sé af gistirýmum í SPRAR móttökumiðstöðvum. Samkvæmt lagabreytingu á Ítalíu frá því í desember 2018 heita móttökumiðstöðvarnar nú SIPRIOMI (System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) og eru nú eingöngu ætlaðar þeim sem eru handhafar alþjóðlegrar verndar, fylgdarlausum börnum og þeim sem hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá kemur fram í gögnunum að einnig bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á einhverja gistiaðstöðu en gistirými séu hins vegar af skornum skammti og því séu margir einstaklingar sem njóti verndar heimilislausir eða búi í yfirgefnum byggingum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu en þeir þurfa að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið. Í ofangreindri skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, um Ítalíu kemur fram að skráningin gildi jafn lengi og dvalarleyfi einstaklinga. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar hafa ekki efni á því. Einstaklingar sem dvelja í SPRAR (SIPRIOMI) móttökumiðstöðvunum eru undanþegnir slíkri greiðsluþátttöku. Til að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu umfram grunnþjónustu þurfa einstaklingar að vera með skráð lögheimili. Þegar einstaklingar hafa skráð lögheimili sitt eiga þeir rétt á að fá sjúkrakort frá sveitarfélögum, en sjúkrakort veitir einstaklingum til dæmis aðgang að heimilislæknum og öðrum sérfræðilæknum sem annars falla ekki undir grunnheilbrigðisþjónustu. Eðli máls samkvæmt getur lögheimilisskráning reynst vandamál, t.d. fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir. Þó bera framangreindar skýrslur með sér að frjáls félagasamtök hafi aðstoðað einstaklinga við slíka skráningu.

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið þar í landi og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna vinnu, sérstaklega ef þeir tala ekki tungumálið eða menntun þeirra eða reynsla fæst ekki metin. Þar að auki er möguleiki þeirra á því að fá félagslega aðstoð takmarkaður enda byggir kerfið að miklu leyti á því að einstaklingar eigi þar fjölskyldu sem veitt geti þeim stuðning.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að þau atriði sem fram koma í greinargerð kæranda varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu séu ekki svo slæm á Ítalíu að endursending kæranda þangað myndi jafnast á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð, sbr. sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Því er það niðurstaða nefndarinnar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu má ráða að þeir eigi rétt á heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir skrái sig inn í heilbrigðiskerfið og gildir sú skráning á meðan dvalarleyfi einstaklinga sé í gildi. Þó svo að mikið álag sé á innviðum þjónustu fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður jafnframt ráðið að þótt fordómar og mismunun á grundvelli kynþáttar séu til staðar á Ítalíu hafi ítölsk stjórnvöld yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við þeim. Er það því mat kærunefndar að kærandi geti leitað ásjár ítalskra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða að á honum verði brotið. Þá hefur kærandi sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í ljósi aðstæðna á Ítalíu og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 5. nóvember 2018 eiga vini hér á landi. Að mati kærunefndar eru tengslin ekki slík að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 11. september 2018.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 8. september 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 11. september 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Árni Helgason                                                                                     Erna Kristín Blöndal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum