Hoppa yfir valmynd
4. mars 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Efla menntasamstarf Íslands og Póllands

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Dariusz Piontkowski menntamálaráðherra Póllands. - mynd
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Dariusz Piontkowski menntamálaráðherra Póllands, undirrituðu í gær samstarfsyfirlýsingu íslenskra og pólskra menntamálayfirvalda um að efla frekara samstarf landanna á sviði menntamála. Undirritunin fór fram í Varsjá í Pólland.

Með yfirlýsingunni er lögð áhersla á að nemendur af pólskum uppruna hafi aðgang að menntun á móðurmáli sínu, hvatt er til aukins samstarfs menntastofnana og samskipta ungmenna, kennara og skólastarfsfólks. Samhliða undirrituninni var tilkynnt að pólsk yfirvöld áforma að opna pólskuskóla á Íslandi, þar sem m.a. mun fara fram móðurmálskennsla fyrir pólsk-íslenska nemendur um helgar.

„Vellíðan og árangur nemenda í menntakerfinu okkar er mér hjartans mál og því er þessi samstarfsyfirlýsing afar ánægjuleg. Um 3000 börn af pólskum uppruna ganga í íslenska skóla og við þurfum að styrkja stöðu þeirra á öllum skólastigum. Góð móðurmálskunnátta er forsenda þess að barn nái góðum tökum á öðru tungumáli,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Undirritun yfirlýsingarinnar er táknræn fyrir mikilvægi samstarfs ríkjanna á sviði menntamála og áherslur mennta- og menningarmálaráðherra í málefnum nemenda af erlendum uppruna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum