Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 10/2020 úrskurður 20. febrúar 2020

Mál nr. 10/2020                     Eiginnafn:      Grey (kk.)

 

 

Hinn 20. febrúar 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2020 en erindið barst nefndinni 2. febrúar 2020.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Mannanafnanefnd telur að almenn merking nafnorðsins grey ‘e-r sem maður vorkennir, vesalingur’ í eiginnafninu Grey (kk.) geti orðið nafnbera til ama.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Grey (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum