Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 490/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 490/2021

Fimmtudaginn 20. janúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2021, um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 17. mars 2020 og var umsókn hennar samþykkt 27. apríl 2020. Þann 24. ágúst 2021 fékk kærandi tölvupóst og smáskilaboð í farsíma sinn frá Vinnumálastofnun þar sem hún var boðuð í viðtal hjá stofnuninni daginn eftir sem henni bæri skylda til að sinna. Kærandi afboðaði komu sína með tölvupósti, dags. 24. ágúst 2021, með þeim skýringum að hún væri að fara til útlanda þann dag. Kærandi skráði sig í orlof frá 24. ágúst til 2. september 2021 og sendi inn flugseðla með sömu dagsetningum. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 7. september 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna þessa og vakin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti þeir sem ekki mæti til stofnunarinnar á áður boðuðum tíma þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 17. september 2021. Með bréfi, dags. 22. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 19. október 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi ekki tekið skýringar hennar gildar. Kærandi hafi átt flugmiða til B þann 24. ágúst 2021 en þann 25. ágúst 2021 hafi hún átt að koma á skrifstofu Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi flogið út til B þann 24. ágúst 2021 og skráð sig í frí á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar en stofnunin hafi [ekki] metið gildar skýringar hennar á því að hafa ekki mætt á skrifstofu stofnunarinnar. Kærandi skilji ekki hvað hún eigi að gera í þessum aðstæðum því að Vinnumálastofnun hafi sett atvinnuleysisbætur hennar á bið í þrjá mánuði. Kærandi óski eftir aðstoð í þessum skrýtnu aðstæðum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 17. mars 2020. Þann 24. júní 2021 hafi kærandi fengið tölvupóst og smáskilaboð í farsíma sinn frá stofnuninni þar sem hún hafi verið boðuð í símaviðtal hjá stofnuninni þann 25. ágúst 2021 klukkan 13:00. Kæranda hafi verið bent á að um væri að ræða úrræði sem henni bæri skylda til að sinna og að öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ef ekki næðist í hana gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 24. ágúst 2021 hafi kærandi afboðað komu sína með tölvupósti og sagst vera að fara til útlanda þann dag. Í tölvupósti frá kæranda hafi komið fram:

„Good day!I get you email today -   Please show up at Skaftárhreppur office located at Klaustursvegur 4, 2nd floor, 880 Kirkjubæjarklaustur the 25.08.2021, at 13:00. It is necessary to bring a passport or a valid ID. But I already fly away today and will be back 2.09.2021. I fly to visit my parents to C !I will be back and then I come to office!”

Þann sama dag hafi stofnunin óskað eftir því að kærandi skilaði inn flugmiðum. Auk þess hafi kærandi skráð sig í orlof í gegnum „Mínar síður“ frá 24. ágúst til 2. september 2021 vegna tímabundinnar dvalar erlendis. Kærandi hafi í framhaldinu sent flugfarseðla, dagsetta 24. ágúst og 2. september. Ekki verði séð af umræddum farseðlum hvert kærandi hafi verið að fara eða frá hvaða landi hún hafi verið að fljúga. Auk þess verði ekki séð af umræddum farseðlum með hvaða flugfélagi hún hafi flogið út.

Þann 7. september 2021 hafi stofnunin sent kæranda bréf þar sem óskað hafi verið eftir skýringum frá kæranda á því hvers vegna hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi stofnunin sama dag óskað eftir skýringum á því hvers vegna hún hafi hafnað atvinnutilboði hjá D þann 24. ágúst 2021. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Sama dag hafi borist skýringar frá kæranda. Þar komi orðrétt fram:

„Good day, I send already my fly tickets ,I fly to B ,and I have tickets already in 24.08.21 and I make in my pages that vacation dates . I fly home becouse my grandmother day in may and she left a will that had to come to a notary in order to be read. And about the job in Hjúkr ,I has interview ,but they not take me ,because they need people who speak Icelandic and work in night time ,but I single mother and I can’t work at nigh ,because I can’t left my 2 year son alone .“

Vert sé að benda á misræmið í svörum kæranda, annars vegar frá 24. ágúst og hins vegar skýringum kæranda frá 7. september 2021 varðandi til hvaða lands hún væri að fara.

Skýringar kæranda hafi ekki verið metnar gildar. Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda á fundi þann 9. september 2021. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í þrjá mánuði sem annars hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 16. september 2021 hafi kærandi skilað inn frekari gögnum. Engar nýjar upplýsingar hafi borist frá kæranda um ástæðu þess af hverju hún hafi ekki mætt í boðað viðtal til stofnunarinnar og hafi fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 9. september 2021 verið staðfest þann 21. september 2021.

Þann 28. september 2021 hafi kærandi skilað inn niðurstöðum úr COVID-19 sýnatöku. Á vottorðinu komi fram að kærandi hefði greinst með COVID-19 þann 25. september 2021. Umræddar upplýsingar hafi engu breytt varðandi boðun í viðtal hjá stofnuninni þann 25. ágúst 2021 og hafi fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 9. september 2021 verið staðfest þann 4. október 2021.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hún hafi ekki sinnt boðuðu eftirliti hjá Vinnumálastofnun.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.

Það liggi fyrir að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal þann 25. ágúst 2021 en henni hafi verið send boðun í viðtal með tölvupósti og í uppgefið símanúmer hennar þann 24. ágúst 2021. Kærandi hafi gefið þær skýringar að þann 24. ágúst væri hún að fara úr landi, þ.e. til C, til að hitta foreldra sína. Síðar hafi kærandi gefið þær skýringar eða þann 7. september að hún hefði farið til B þann 24. ágúst 2021. Kærandi hafi skráð sig í orlof í gegnum „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar sama dag og hún hafi verið boðuð í viðtal hjá stofnuninni, þ.e. þann 24. ágúst til 2. september 2021.

Vinnumálastofnun árétti að frá því í júní hafi stofnunin í þrígang gert tilraunir til að boða kæranda til stofnunarinnar í viðtal. Þann 14. júní 2021 hafi kærandi verið boðuð í vegabréfseftirlit hjá stofnuninni þann 15. júní klukkan [13:00] en hafi ekki mætt þar sem hún hafi kveðist ekki vera á landinu en kærandi hafði ekki tilkynnt um ferð erlendis. Kæranda hafi verið bent á að skila inn flugfarseðlum á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þegar hún kæmi heim. Þann 24. júní 2021 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar og hafi skilað brottfararspjöldum og sýnt vegabréf sitt. Sökum þess að kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis hafi bótaréttur hennar verið felldur niður frá og með 2. júlí 2021 í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Auk þess hafi kærandi ekki mætt í boðað viðtal á skrifstofu Vinnumálastofnunar þann 8. september 2021 klukkan 13:00 en boðunin hafi verið send með smáskilaboðum og tölvupósti þann 7. september 2021.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að mæta ekki á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi hún brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, enda hafði hún ekki tilkynnt um dvöl sína erlendis þegar hún hafi verið boðuð til fundar hjá stofnuninni.

Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en um sé að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni.

Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og að ákvörðun stofnunarinnar frá 9. september 2021 skuli standa.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að ráðgjafi Vinnumálastofnunar hugðist taka viðtal við kæranda 25. ágúst 2021 á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar sem kæranda var tilkynnt um daginn áður. Tekið var fram að um væri að ræða úrræði sem kæranda bæri skylda til að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Þá var kæranda bent á að ef hún myndi ekki mæta á uppgefnum tíma gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 24. ágúst 2021 afboðaði kærandi komu sína með tölvupósti og gaf þær skýringar að hún væri að fara til útlanda þann sama dag. Á grundvelli þessa tók Vinnumálastofnun þá ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda með vísan til þess að hún hefði ekki mætt í boðað viðtal í skilningi 58. gr. laga nr. 54/2006.

Úrskurðarnefndin bendir á beiting viðurlaga samkvæmt 58. gr. laganna er íþyngjandi ákvörðun og verður því að mati nefndarinnar að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Fyrir liggur að kæranda var send boðun í viðtal þann 24. ágúst 2021 og þann sama dag tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun að hún kæmist ekki á boðuðum tíma sökum ferðar erlendis. Þau gögn sem Vinnumálastofnun hefur lagt fram til stuðnings ákvörðun sinni benda ekki til þess að kæranda hafi verið boðinn annar viðtalstími sem úrskurðarnefndin telur að hafi verið tilefni til í kjölfar skýringar hennar. Þar sem kærandi  tilkynnti Vinnumálastofnun um forföll vegna boðaðs viðtals er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki hafi verið heimilt að beita viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2021, um að fella niður bótarétt A, í þrjá mánuði, er felld úr gildi.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum