Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2017 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ísland ljóstengt 2017 – niðurstaða opnunar styrkbeiðna

Fjarskiptasjóður úthlutar styrkjum til sveitarfélaga til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli utan markaðssvæða. Í fyrra hlutu 14 sveitarfélög alls 450 m.kr. styrk til þess að tengja um 1.000 lögheimili og vinnustaði.

Umsóknar- og úthlutunarferli  vegna fyrirhugaðra framkvæmda sveitarfélaga 2017 er langt komið. Þann 1. febrúar s.l. voru opnaðar samtals 146 styrkbeiðnir frá 34 sveitarfélögum. Mat á þeim umsóknum liggur fyrir. Alls eiga 23 sveitarfélög nú kost á alls 450 m.kr. styrk til þess að tengja um 1.800 lögheimili og vinnustaði með ljósleiðara. Þar af verða um 400 byggingar tengdar um fyrirliggjandi ljósleiðararör.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er Ísland ljóstengt lykilaðgerð í byggðamálum.

Birt með fyrirvara um reikni- og innsláttarvillur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum