Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Hvatt til ljósabekkjabanns ungmenna

Geislavarnastofnanir Íslands, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar leggja til að börnum og ungmennum yngri en 18 ára verði bönnuð notkun ljósabekkja. Yfirlýsing norrænu geislavarnastofnananna birtist sameiginlega í löndunum fjórum í morgun. Norrænar geislavarnastofnanir ráðlögðu árið 2005 fólki undir 18 ára aldri og fólki með ljósa húð að nota ekki ljósabekki. Í nýrri sameiginlegri yfirlýsingu fjögurra geislavarnastofnana í Finnlandi, Svíþjóð, Íslandi og Noregi er nú lagt til að 18 ára aldursmörk séu sett á notkun ljósabekkja. Í tilkynningu frá Geilsavörnum ríkisins segir:

„Útfjólublá geislun eykur marktækt líkur á húðkrabbameinum. Börn og ungmenni eru viðkvæmari en aðrir fyrir henni. Þeir sem sólbrenna ungir eiga frekar á hættu að fá illkynja sortuæxli síðar á ævinni. Illkynja sortuæxli eru talin alvarlegasta gerð húðkrabbameina.

Samkvæmt alþjóðlega viðurkenndri meginreglu í geislavörnum skal sérhver notkun geislunar vera réttlætanleg, þannig að gagn vegi þyngra en skaði. Alþjóðlega rannsóknastofnunin í krabbameinsfræðum (IARC) sem starfar á vegum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, hefur nýlega flokkað geislun frá ljósabekkjum sem „krabbameinsvaldandi fyrir fólk“. Þetta vekur upp áleitnar spurningar um hvort réttlæta megi notkun ljósabekkja til að fá brúnan húðlit.

Geislavarnastofnanirnar mæla þess vegna með að settar verði reglur um ljósabekki á sólbaðstofum opnum almenningi sem banna notkun, sölu eða leigu þeirra til barna eða unglinga undir 18 ára aldri. Löggjöf um þetta hefur þegar verið innleidd í ýmsum Evrópulöndum.“

Sjá nánar á vef Geislavarna ríkisins

Sjá nánar yfirlýsing norrænu geislavarnastofnananna (pdf - opnast í nýjum glugga)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum