Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 29/2004

Þriðjudaginn, 2. nóvember 2004

 

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

  

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 10. júní 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 8. júní 2004.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsett 11. mars 2004 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir m.a.:

„Undirrituð er ósátt við úrskurð Tryggingastofnunar ríkisins um að fá ekki úthlutað fæðingarstyrk námsmanna. Undirrituð hefur lagt fram öll gögn sem sýna á ótvíræðan hátt að hún sé námsmaður í fullu námi við B-háskólann frá ágúst mánuði til barnsburðar. Í ofanálag að hafa stundað 20% nám nú á vormisseri. Áður en nám hófst var undirrituð búsett í D-landi í eitt ár ásamt sambýlismanni og stundaði þar háskólanám sem mögulegt var á þeim skamma tíma sem dvölin stóð. Í fylgiskjölum eru gögn sem staðfesta námið. Áður hafði undirrituð verið í fullu starfi í um 7 ár. Undirrituð telur sig vera námsmann í 100% námi og stefnir á að ljúka E-prófi innan fárra ára.“

 

Með bréfi, dags. 15. júní 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dags. 30. júní 2004. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 (ffl.).

Með umsókn, dags. 1. desember 2003, sem móttekin var 2. desember 2003, sótti kærandi um fæðingarstyrk námsmanna. Umsókn hennar var vegna barns, sem fætt er 26. desember 2003, en áætlaður fæðingardagur þess var 12. desember 2003.

Með umsókn kæranda fylgdu bréf kæranda, dags. 1. desember 2003, vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 24. nóvember 2003, vottorð B-háskólans, dags. 24. nóvember 2003, yfirlit B-háskólans yfir námsferil kæranda, dags. 24. nóvember 2003 og vottorð F-háskólans, dags. 26. nóvember 2003.

Með bréfi lífeyristryggingasvið til kæranda, dags. 22. janúar 2004, var óskað eftir frekari gögnum um námsframvindu kæranda. Í framhaldinu barst lífeyristryggingasviði bréf kæranda, dags. 27. febrúar 2004. Enn fremur barst lífeyristryggingasviði yfirlit B-háskólans yfir námsferil kæranda, dags. 22. janúar 2004. Þá aflaði lífeyristryggingasvið auk þessa upplýsinga af heimasíðu F-háskólans og heimasíðu lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Kæranda var með bréfi, dags. 11. mars 2004, synjað um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. ffl. eiga foreldrar í fullu námi rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr. Í lokamálslið 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar er síðan tekið fram að einstök námskeið teljist ekki til fulls náms. Í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002, er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur.

Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrðum um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Þá er heimilt að taka tillit til ástundnar náms á þeirri önn sem barn fæðist, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrðinu um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki fullnægt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 969/2001, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 14. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Í 14. gr. a reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 915/2002, segir að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 14. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í nám og fengið greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður eða verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma.

Í gögnum málsins liggur fyrir vottorð F-háskólans þess efnis að kærandi hafi stundað G-nám við skólann frá september 2002 til desember 2002 og frá febrúar 2003 til mars 2003. Kærandi hefur engin gögn lagt fram um það hvernig nám þetta er uppbyggt og hver námsframvinda hennar þar hafi verið. Lífeyristryggingasvið hefur aflað sér upplýsinga um námið af heimasíðu skólans og af þeim upplýsingum verður ekki annað ráðið en að hér sé um að ræða námskeið sem samkvæmt framangreindu telst ekki til fulls náms. Lífeyristryggingasvið getur því ekki fallist á að taka nám kæranda í F-háskólanum til greina við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns hennar.

Kærandi hóf að vera í fullu námi þegar hún hóf nám sitt í B-háskólanum haustið 2003, sbr. vottorð B-háskólans. Hafði hún því ekki verið í fullu námi þar í sex mánuði fyrir fæðingu barns hennar þann 26. desember 2003.

Með vísan til framangreinds telur lífeyristryggingasvið að kærandi uppfylli ekki það almenna skilyrði fyrir fæðingarstyrk námsmanna að hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns hennar. Þá á engin framangreindra undanþága frá almenna skilyrðinu um fullt nám í a.m.k. sex mánuði við um kæranda.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 5. júlí 2004, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun á greiðslu fæðingarstyrks til kæranda sem námsmanni.

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð m.a. vegna anna hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) eiga foreldrar í fullu námi rétt til greiðslu fæðingarstyrks. Í 7. mgr. sömu greinar segir að ráðherra sé heimilt að kveða í reglugerð nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis.

Í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er kveðið á um að fullt nám teljist vera 75–100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Heimilt er að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr. Einstök námskeið teljast ekki til fulls náms.

Kærandi elur barn 26. desember 2003. Með hliðsjón af því er tólf mánaða viðmiðunartímabilið frá 26. desember 2002 fram að fæðingardegi barns.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi skráð í fullt nám við B-háskólann á haustönn 2003. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 sbr. breyting nr. 915/2002, 3. gr., skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að nám hennar við F-háskólann veturinn 2002-2003 hafi verið fullt nám í framangreindum skilningi. Uppfyllir hún því ekki það skilyrði að hafa verið í fullu námi í sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns.

Með hliðsjón af framangreindu hefur kærandi því ekki áunnið sér rétt til greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í námi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi greiðslur í fæðingarorlofi er því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum