Hoppa yfir valmynd
15. október 2014 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2015 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. október sl. um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2015, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Á grundvelli frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 3.348,9 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema  60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.009,3 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaganna  á árinu 2015 fer fram  mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá  Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2014, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2015 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum