Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 51/2018 Úrskurður 14. ágúst 2018

Mál nr. 51/2018                    Millinafn:       Svæk

 

 

 

 

Hinn 14. ágúst 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2018 en erindið barst nefndinni 28. júní.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Svæk telst ekki dregið af íslenskum orðstofni og telst því brjóta í bág við skilyrði 6. gr. laga um mannanöfn nema það hafi unnið sér hefð í íslensku máli. Við túlkun hugtaksins hefð í 5. og 6. gr. mannanafnalaga styðst mannanafnanefnd eftirfarandi vinnulagsreglur, sem nefndin setti sér á fundi 15. janúar 2015, og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

a.      Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.     Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

e.      Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Nafnmyndin Svæk endurspeglar viðtekinn íslenskan framburð á nafni aðalpersónu hins alkunna skáldverks Jaroslavs Hašek sem í þýðingu Karls Ísfelds nefnist Góði dátinn Svejk. Nafnið getur því talist hafa unnið sér menningarhelgi á Íslandi. Nafnmyndin Svæk brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Svæk er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum