Hoppa yfir valmynd
18. desember 2017 Innviðaráðuneytið

Fundaði með forstöðumönnun stofnana ráðuneytisins

Sigurður Ingi Jóhannsson fundaði með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins ásamt helstu samstarfsmönnum. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti óformlegar viðræður við forstöðumenn stofnana ráðuneytisins um það sem efst væri á baugi í starfseminni. Fundurinn var haldinn í dag í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Fundinn sátu Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands, Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu og Þorkell Ágústsson, rekstrarstjóri Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Auk ráðherra sátu fundinn Ingveldur Sæmundsdóttir aðstoðarmaður, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og skrifstofustjórar ráðuneytisins, þau Guðbjörg Sigurðardóttir, Ingilín Kristmannsdóttir, Hermann Sæmundsson og Sigurbergur Björnsson.

Á fundinum óskaði ráðherra eftir nánu samstarfi við forstöðumennina og stofnanir þeirra og sagðist ráðgera að heimsækja þær í byrjun nýs árs til að kynnast starfseminni nánar.

Forstöðumenn á fundi hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Forstöðumenn stofnana samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Frá hægri: Þórólfur Árnason, Aðalsteinn Þorsteinsson, Margrét Hauksdóttir, Hreinn Haraldsson, Hrafnkell V. Gíslason og Þorkell Ágústsson.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum